Ferðasögur
Linda Björg og fjölskylda fóru til draumastaðarins- Orlando
Ég heiti Linda Björg og er 12 ára. Ég var svo heppin að vera dregin út sem Vildarbarn Icelandair. Það var vikuferð sem ég fékk að fara í með fjölskyldu minni, mamma pabbi og Einar bróðir. Draumastaðurinn var að fara til Florida. Við fórum 14. nóv.
Ég fór með mömmu, pabba og Einari bróður upp á flugvöll og flugvélin fór í loftið kl. 18.00 og við flugum beint til Orlando í Florida. Þegar við komum þangað var farið að ná í bílaleigubílinn og lykillinn af húsinu sem við vorum í. Daginn eftir var farið í að skoða sig um og skoðað í búðir í leiðinni. Svo næsta dag fórum við á veitingastað (Pondarosa) og fengum okkur morgunmat. Eftir hádegi fórum við á stað sem heitir FUN SPOT og það var æðislega gaman. Þar voru mörg tæki sem við fórum oft í. Það var svo gaman í FUN SPOT að við fórum líka daginn eftir. Svo var komið að því að við fórum í Disney. Við hittum Andrés Önd, Guffa, Mikka mús og Minni mús o.fl. þetta var allveg meiriháttar dagur. Svo var farið heim eftir frábæran dag. Daginn eftir var farið í búðir að eiða, við fórum í Nike búð, Toysrus o.fl. Um kvöldið var farið að borða í Pizza Hut niður í Old Town og svo var labbað og skoðað sig um. Svo fórum við í Wall Mart og versla. Og svo í WetnWild sem er vatnagarður með allskonar sundlaugum.
Þetta var frábær ferð og vil ég og fjölskylda mín þakka Vildarbörnum fyrir ómetanlegt starf, þau eiga heiður skilið.








