Ferðasögur
Hekla Björg vildi skoða Disney World og Sea World
Í apríl 2007 var Hekla Björg það lánsöm að vera ein þeirra sem hlaut styrk Vildarbarna Flugleiða.
Við fórum á sumardaginn fyrsta og tókum við honum og þá byrjaði svo sannarlega ferðalagið okkar, tilhlökkunin og hamingjan sem fylgir slíkum auð. Hekla Björg er 9 ára stúlka sem glíimr við mjög sjaldgæfan og alvarlega hjartagalla og árið var búið að vera henni erfitt vegna skilnað foreldra hennar. Því var þetta eins og guðsgjöf að fá úthlutun og breyta um umhverfi.

Hekla Björg þurfti að bíða til september með að fá grænt ljós á að fara í draumaferð sína til Florida, en sá var áfangastaðurinn sem hún valdi. Ástæðan á biðinni var sú að hjartalæknir hennar vildi hjartaþræða hana áður en hann gæfi leyfi fyrir ferðalaginu. Hún fékk sem sagt grænt ljós og í nóvember 2007 fórum við til Orlando, Florida. Hún var svo sannarlega með á hreinu hvað hún vildi sjá, það var Disney World og Sea World.
Við flugum út, þ.e. Hekla Björg, ég (mamma hennar) Anna Kristín og móðir mín Jóna. Hekla bauð sem sagt okkur mæðgum með sér og allar höfðum við svo gott og gaman af. Veðrið var yndislegt. Við vorum á yndislegu hóteli, Bahama Bay Resort, með bílaleigubíl og allt til alls. Nutum þess að vera í sundlauginni, skoða okkur um því jú þarna er nóg að sjá og við náðum aðeins broti af því á þessum 10 yndislegu dögum. 
Ferðalagið er langt til Florida en svo sannarlega þess virði þegar ég sá stúlkuna ljóma og skemmta sér. Við fórum í Disney World og þar hittum við margar prinsessur, Mikka og Mínu, Guffa, Andrés og Andrésínu, Pétur Pan og margar aðrar persónur og það var hreint ævintýralegt :) Þarna voru sýningar, heimili stjarnanna og margt sem gladdi augað og börnin og svo sannarlega varð maður sjálfur eins og barn því þetta var eins og að vera staddur í ævintýralandinu. 


Við fórum einnig í Sea World og sýningarnar þar og mannlífið hreint ævintýralegt líka. Við dvöldum heilan dag í Disney World og annan í Sea World og þetta var yndislegt. Einnig fórum við á Cirqus o'lei í Down town Disne
y og sú sýning er mjög skemmtileg. Tívolí, mínígolf og verslanir voru einnig partur af ferðalaginu og þar sem við vorum í lok nóvember var jólastemmingin byrjuð í Florida. Það var svolítið skrítið að vera þarna í sumarklæðnaði og heyra jólalög og sjá jólaskrautið.

En takk kærlega fyrir okkur þetta var yndisleg ferð og mjög vel hugsað um okkur.
Kveðja úr Þorlákshöfn Hekla Björg, Anna Kristín og Jóna.





