Ferðasögur

Brynjar Óli horfði á höfrungasýningu í Sea World

4.11.2008

Vildarferð Brynjars Óla og fjölskyldu.

Föstudagurinn 3. október 2008. Loksins rann upp hinn langþráði dagur. Nú skyldi haldið til Orlando til að skemmta öllum í fjölskyldunni almennilega.

Undirbúningurinn hófst þó mun fyrr, en Brynjar Óli, núna 7 ára strákur með alvarlegan meðfæddan hjartagalla, hafði fengið Vildarferð, ákaflega höfðinglega gjöf frá Vildarbörnum Icelandair um einu og hálfu ári áður, en aðstæður höfðu einhvernvegin alltaf hagað því þannig að ekki var hægt að fara á þeim tíma sem áætlað var að nota, ýmislegt óvænt kemur uppá í stórri fjölskyldu með langveikt barn. Núna stóð ekkert í vegi fyrir brottför, læknar gáfu grænt ljós og Brynjar var vel frískur og alla fjöldkylduna (mömmu, pabba, Brynjar Óla ,Eddu stóru systur (12) og tveimur yngri systrum Evu (6) og Elísu 6.mán) hlakkaði mikið til. Kannski hlakkaði reyndar minnstu systur ekki mikið til enda bara 6.mánaða gömul og hafði ekki mikið vit á því sem var að gerast.

Orlando saga Brynjars Óla hjartastráks. Orlando2008_059

Flugferðin út gekk mjög vel. Ég var svo spenntur að ég svaf ekkert allan daginn fram að flugi og ekkert í flugvélinni, 8. klt. ferð. Þegar út var komið og búið að sækja bílinn, flottan 7 sæta Toyota Sienna, og aksturinn á hótelið hafinn, þá var kallinn orðinn veikur, kominn með hita og þvílíkt slappur. Mömmu og pabba leist ekki á blikuna, kannski færi langþráð frí bara í læknastúss í Orlando eins og margar frítilraunirnar höfðu endað heima á Íslandi gegnum tíðina. Ég náði svo að sofna eftir að komið var á hótelið, svaf illa, var órór sífellt vaknandi og kallandi á mömmu og pabba. Ég var samt mun betri morguOrlando2008_019ninn eftir, þetta hafði þá bara verið uppsöfnuð þreyta, enda búinn að vera vakandi í c.a. 18 tíma vegna spennings. Við tókum þess vegna rólega fyrstu tvo dagana, fundun nærsta Wall Mart og versluðum í matinn, skoðuðum hótelsvæðið og nánasta umhverfi. Hótelið var frábært (Bahama Bay Resort) með fínni sundlaugaraðstöðu sem við nýttum vel þessa fyrstu daga. Það var líka eitthvað kíkt í búðir, þið vitið hvernig 12 ára stelpa og mamma verða í kringum búðir í útlöndum, en Íslenska krónan okkar var víst eitthvað veik líka á þessum tíma þannig að þær mæðgurnar fengu ekki alveg lausan taum, sem var ágætt því mér, Evu og Elísu líkaði ekki mjög vel við búðaráp og ekki pabba heldur. Plúsarnir voru þó að pabbi var duglegur að splæsa í ís og finna eitthvað skemmtilegt að gera á meðan mæðgurnar skoðuðu og versluðu.

Ákveðið var að fara í fjóra skemmtigarða. Það eru næstum endalausir skemmtigarðar í Orlando, svo margir að ef maður hefur ekki nokkra mánuði til starfans þá þarf að velja eitthvað úr. Það er hörku vinna og púl að fara heilan dag í svona garða, reyndar mjög skemmtileg vinna, en reynir á alla og fínt að hvíla sig vel inn á milli. Allavegana fannst mömmu og pabba það og mér líka því ég er nokkuð fljótur að þreytast, þjáist ekki bara af hjartagalla, líka lungnavandamálum og raddbandalömun sem gerir það að verkum að ég mæðist mjög fljótt og þarf að hvíla mig.

Keyptir voru miðar í Sea World, Busch Gardens og Aquitica en þeir garðar eru í samstarfi og hægt var að fá miða sem giltu í 14 daga í garðana og hægt að koma eins oft og maður vill á tímabilinu. Við nýttum miðana vel og fórum tvisvar í alla þrjá garðana.

Fyrsti garðurinn sem við heimsóttum var Busch Gardens, en það tekur um 1. klt. að Orlando2008_108keyra þangað frá Orlando.  Frábær garður með fjölbreytta skemmtun fyrir alla fjölskylduna virkileg eitthvað sem ekki má sleppa. Þarna er dýragarður og skemmtigarður sett saman í eitt, eins konar stóri bróðir húsdýragarðsins, eða meira eins og RISA, RISA stóri bróðir!!!  Svo stór að það veitti ekki af tveimur heimsóknum til að prófa allt. Fórum í fyrra skiptið á mánudeginum.  Við vorum svo heppin að vera á þeim tíma ársins sem það er ennþá nokkuð hlýtt á Flórída, 25 – 30 °c en ferðamannafjöldin í lágmarki svo það voru ekki neitt rosalegar raðir í tæki. Okkur tókst því að prófa flest öll tækin í garðinum, allavegana þessi stærstu. Það voru reyndar rússíbanar þarna sem bara mamma, pabbi og stóra systir máttu fara í en okkur hinum var alveg sama því að á meðan pabbi fór með Eddu stóru systir í stóru tækin var mamma með okkur á barnasvæðum þar sem svakalegt úrval var að alskonar klifurhúsum, litlum rússíbönum og fullt af öðru skemmtilegu. Svo var pabbi með okkur þar þegar mamma skrapp með Eddu.

Næst var svo farið í Sea World,Orlando2008_267 en það var bara 15.mín. akstur þangað. ÞaOrlando2008_348r sáum við ótrúlega flotta háhyrningasýningu og fórum í rosalega skemmtileg tæki. Það var reyndar eitt tæki þar sem ég fór í og líkaði ekki neitt rosaleg við eftirá. Við fórum á vagni í gegnum Atlantis borg og enduðum svo á falli niður stóran foss og við urðum öll rennandi blaut, ég fór ekki aftur í það tæki. Við fórum í þyrluferð á Suðurpólinn, lentum í óveðri og allt. Þyrlan Orlando2008_242lenti svo í einhverri rannsóknarstöð sem við löbbuðum í gegnum, við sáum mörgæsir, seli og fleira, enduðum svo með því að ganga í gegnum dyr og vorum þá allt í einu aftur komin í hitamolluna í Orlando!!  Það eru sannarlega galdrar þarna í spilinu! Í Sea World eru margar mjög flottar sýningar þannig að við ákváðum að koma þangað aftur seinna í ferðinni til að sjá þær allar þar sem einungis gafst kostur á að sjá eina sýningu í þessari fyrstu heimsókn okkar. Það rigndi nefninlega heil ósköp seinni part dagsins svo við fórum snemma heim úr garðinum. Rigningin var samt heit og ekki neitt óþægileg, en það er ekki eins gaman í görðunum þegar það rignir! Á þessum árstíma (haustin) rignir oft seinni part dags á Flórída. Svolítið skrítið, ef það rigndi þá var það alltaf um kl.15:00 og í einn til tvo tíma og svo búið!!

Svo var farið í AOrlando2008_305quitica sem er nýr vatnsrennibrautagarður sem Sea World setti upp. Garðurinn er við hliðina á Sea World. Hann var reyndar ekki stærri en svo að við gátum prófað allar rennibrautirnar í fyrstu heimsókninni, það er að segja pabbi og Edda prófuðu allar. Við Eva, Elísa og mamma héldum okkur meira á barnasvæðinu sem var rosalegt. Þar er svakalegur stálgrindakastali með fullt að göngum, hengibrúm og vatnsbyssum og svoleiðis til að hrekkja aðra. ÞOrlando2008_288að voru líka fullt af rennibrautum út úr honum af mismunandi hæðum. Við Eva fórum svo með pabba og Eddu og stundum mömmu og Eddu í stærri rennibrautir sem sumar voru með dýnum af öllum stærðum og gerðum sem átti að renna sér á, það var alveg rosalega gaman. Það var bara svo skemmtilegt að við fórum þangað aftur áður en ferðinni lauk til að renna okkur meira. Mömmu og pabba fannst líka gott að liggja smá í sólbaði þar og slappa af. Við krakkarnir höfðum nóg að gera í kastalanum. Þar var líka allt morandi í vörðum svo ekki þurfti að hafa miklar áhyggjur af okkur.

Við notuðum svo daga inn á milli skemmtigarða heimsókna til að skoða aðeins í búðir og alltaf þurfti reglulega að kaupa í matinn og svoleiðis. Nokkrum sinnum fórum við líka í „Down Town Disney“ en það er eins konar miðbær inni á Disney svæðinu þar sem hægt er að fara í Disney búðir, flotta veitingastaði og ýmsa skemmtun sem er þar í boði.Orlando2008_062 Rosalega flott og spennandi svæði. Þar fórum við m.a. á veitingastað sem heitir Rainforest Cafe sem er innréttaður eins og frumskógur. Það heyrist fullt af dýrahljóðum og stundum þrumur með viðeigandi eldingablikki, á meðan maður er að borða. Þar fengum við okkur svo þann stærsta eftirrétt sem ég hef séð, súkkulaðiköku eldfjall fyllt af ís, með stjörnuljósum á toppnum. Pabbi vissi reyndar ekki hversu stórt það var því við sáum bara mynd af því í matseðlinum. Hann ætlaði að kaupa tvö svona fjöll handa okkur, eitt fyrir mömmu og sig og annað fyrir okkur krakkana. Svo ákváðu mamma og pabbi að kaupa bara einn handa okkur öllum til að smakka, þar sem við krakkarnir vorum ekki viss um að borða kökupartinn, sem var eins gott því það var svo stórt og matarmikið að þegar allir voru orðin pakksaddir þá var ennþá næstum helmingurinn eftir og trúið mér, þetta var algjört lostæti.

Við fórum líka á Planet Hollywood sem er líka í Down Town Disney í risastóru bláu kúluhúsi. Þá meina ég alvöru kúluhúsi, því húsið er eins og bolti í laginu, stór blár bolti eða pláneta. Þjónustustúlkan sagði okkur að þetta væri stærsti Planet Hollywood veitingastaður í heimi. Veitingasalir voru á 4 eða 5 hæðum í kúlunni en svo var risaskjár á einum veggnum sem náði í gegnum allar hæðirnar, þar héngu líka bílar og tvíþekju flugvél í fullri stærð. Allir þessir veitingastaðir og verslanir voru rosalega skemOrlando2008_396mtilegir staðir. Í einni versluninni gat ég smíðað mitt eigið Star Wars geislasverð og svo var hægt að kubba með lego í einni versluninni. Það var alltaf fullt að gera þarna langt fram eftir kvöldi.

Við fórum aftur í Busch Gardens, Sea World og Aquitica seinni part ferðarinnar og það var rosalega notalegt að koma svona aftur þangað því þá lá ekki eins á að fara í allt, við vorum búin að prófa flest í görðunum í fyrstu ferðinni svo við fórum bara í það sem var skemmtilegast og svo náttúrulega líka það sem við slepptum fyrst. Í Sea World fórum við á allar sýningarnar sem við slepptum fyrsta daginn. Við sáum höfrungasýningu, sátum á fremsta bekk og fengum yfir okkur fullt af vatnsgusum, jibbííí, sáum svo sæljónasýningu, dýrasýningu með alskonar dýrum, hundum, köttum, fuglum, músum, svínum og bara alskonar. Svo var sérstakt leikrit þar sem ljósabrellur voru mikið notaðar. Mér og Evu fannst það rosalega flott. Mömmu, pabba og Eddu fannst hinar sýningarnar flottari.

Síðan var náttúrOrlando2008_047ulega farið í Disney World, algjört „möst“. Disney svæðið var rétt hjá hótelinu okkar, það tók ekki nema um 10 mín. að keyra inn á þOrlando2008_077að en hverfið er roslega stórt. Disney er reyndar samansett úr 7 görðum og við völdum að fara í Magic Kingdom sem er aðal barnagarðurinn, með Disney kastalanum og Disney fígúrum á hverju strái. Ég og Eva systir fengum að kaupa áritunar bækur og söfnuðum eiginhandaráritunum frá fígúrum á borð við Bangsimon og Tígra, Mikka mús og Mínu, Guffa, Öskubusku, Fríðu, Mjallhvíti og fleirum. Öll tæki í Magic Kingdom voru þannig gerð að börn yfir 120cm mega fara í þau, en þau eru samt sem áður flest mjög skemmtileg fyrir eldri börn og jafnvel foreldra líka. Við fórum í geimverustríð með Bósa ljósár, vorum með geislabyssur og skutum á vondar geimverur, pabba tókst einhvernvegin alltaf að fá flest stigin þar, ótrOrlando2008_465úlega hittinn, skil ekki alveg hverng hann fór að því? Við fórum líka í draugahús og rosalega flott 3D bíó sem var svo raunverulegt að þegar Andrés önd sletti vatni í átt að bíógestum í salnumOrlando22008_020 þá rigndi vatni yfir okkur!! Við fórum líka í rússíbana, já og einn af þeim, Space Mountain var innandyra í svarta myrkri, hann var alveg svakalegur. Ég treysti mér ekki í ferð númer tvö þar svo systur mínar, Edda og Eva, ekki Elísa, fóru með mömmu sem hafði beðið meðan pabbi fór með okkur fyrstu ferðina. Svo var rosalegt sjóræningjaland, sáum Jack Sparrow og fleiri. Þetta var bara allt alveg rosalega frábært og algerlega ógleymanlegt.

Ferðin var í alla staði hin glæsilegasta. Vildarbörn Icelandair eiga mikið hrós skilið fyrir frábæran stuðning. Flugið heim var svo til að kóróna ferðina. Það voru 4 sæti laus á Business Class og flugfreyjurnar settu okkur í þau, vorum svo með 2 sætir á venjulegu farrými rétt fyrir aftan. Fengum frían aðgang að bíómyndum og ég fékk líka aðgang að tölvuleikjunum í nýja afþreyingakerfinu hjá þeim sem svín virkar barasta. Ég skemmti mér hið besta og flugfreyjurnar stjönuðu við mig. Mér tókst meira að segja að sofa smá á heimleiðinni enda sætin á Business Class rosalega rúmgóð og þægileg fyrir svona kall eins og mig.

Við erum nú þegar farin að spara fyrir annarri Orlando ferð. Ætlum að reyna að fara aftur eftir 5-6 ár ef okkur tekst að safna saman fyrir því, það er ekki ódýrt fyrir 6 manna fjölskyldu að ferðast. Við hefðum ekki komist í svona ævintýraferð núna ef ekki hefði verið fyrir góðvild Vildarbarna Icelandair starfsmanna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir ævintýrið okkar.

Í lokin hvetjum við alla sem lesa þetta til að vera gjafmildir í sjóðin fyrir vildarbörn og gefa duglega í umslagið sem er í sætisvasanum fyrir framan ykkur í flugvélinni. Hvetjið einnig þá sem þið þekkið til að gera það sama. Þannig getur sjóður Vildarbarna glatt ennþá fleiri langveik börn með ævintýraferðum sem þau gæti annars bara dreymt um að fara í.

Kærar kveðjur.

Brynjar Óli og fjölskylda.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.