Ferðasögur
Öldu Kristínu fannst skemmtilegast í Kennedy Space center og Universal Studios.
Halló! Hólmfríður heiti ég og er mamma Öldu Kristínar við erum nýkomin heim frá Orlando eftir frábæra ferð á vegum vildarbarna.
Við fjölskyldan sem erum fjögur (tvö fullorðin og tvö börn) fórum eins og ég sagði áðan til Orlando um miðjan september og fengum um 30 stiga hita alla dagana og bara smá skúrir einn dag. Við gerðum allt mögulegt skemmtilegt fórum í Sea World, Disney World, Universal Studios og Kennedy Space Center. Við vorum eiginlega öll sammála um að það hefði verið skemmtilegast í Kennedy Space Center, og Universal Studios. Það er annars erfitt að gera upp á milli því þetta var allt eitt stórt ævintýri fyrir okkur öll. Og við höfum ákveðið öll í sameiningu að reyna að safna og fara aftur til Orlando. Svo í lokin Við bjuggum í fallegu húsi og alltaf þegar við komum heim á kvöldin þá sat lítill sætur froskur við útidyrnar eins og hann væri að bíða eftir okkur og svo var aumingja Öldu strítt á því að þetta væri prins í álögum og hún yrði að kyssa hann, en hún var nú ekki á því. EN enn og aftur okkar allra bestu þakkir til vildarbarna fyrir að gera okkur kleift að upplifa þetta stórkostlega ævintýri. Þetta var skemmtun sem á eftir að lifa lengi í minningunni. Okkar bestu þakkir
Kveðja,
Alda Kristín, Bergur Björn, Hólmfríður, og Kári Olgeir.










