Ferðasögur
Ævintýrið hans Hrafnkells til Orlando
Mig langar að deila með ykkur frá ferð minni með son minn, sem er fjölfatlaður og fjölskyldu okkar til Florida á vegum vildarbarna Icelandair, að heimsækja Mikka, Mínu og vini, sem var mikil upplifun fyrir Hrafnkel, Björn Leví bróður hans og frændsystkin.
Ferðin - Hrafnkell
Ævintýraferðin mín hófst þegar heilli viku fyrir brottför. Það er mikill undirbúningur fyrir langferð þegar einstakur strákur eins og ég á í hlut. Lyf, tæki, hjálpartæki, stólar og aðrir aðstoðarhlutir verða að vera í fullkomnu lagi fyrir brottför. Mamma mín var alveg á fullu að búa í haginn og sjá til þess að væri klárt fyrir mig, svo að ég yrði nú fyrir sem minnstu raski í ferðinni sjálfri. Það þurfti að finna setupláss fyrir mig í flugvélinni. Þetta er nú bara eitt af því sem sýnir hversu flókin einföld mál gerða orðið þegar ég, Hrafnkell fer í ferð. Ég er nú svo ljónheppin að yndislega amma mín, hún Bára vinnur í flugstöðinni í Keflavík og gekk undurvel frá hnútunum, svo það væri sem auðveldast að koma mér fyrir í flugvélasætinu. Það er auðvitað ekki gert ráð fyrir því svona yfirleitt, að þeir sem fljúga um heiminn geti ekki setið uppréttir!
Þá var ég loksins kominn í flugvélina og var mjög spenntur. Mamma mín sat hjá mér. Stóri bróðir minn hann Björn Leví og frændi minn fyrir framan mig . Amma Bára og afi Hrafnkell við hliðina á þeim og loks móðursystir mín og Thelma Rún sem er uppáhaldsfrænkan mín og ég hlæ allaf mikið af sátu við hliðina á okkur mömmu. Vildarferðin sem við öll vorum búin að hlakka svo mikið til að fara í, var að hefjast. Flugferðin gekk ljómandi vel. Eftir mat, grín og gaman fékk ég að fara aftur í flugvélina og leggja mig. Ég svaf alveg eins og engill þar til við lentum í Orlando. Flugfreyjurnar hugsuðu óskaplega vel um mig og sögðu að þær gerðu allt fyrir vildarbörnin sín. Ég var alsæll.
Koman til Florída gekk ekki síður. Móttökurnar í flugstöðinni voru stórkostlegar, allir svo góðir við mig. Heidi vinkona mín sem tók á mót mér á flugvellinum í Orlando, fylgdi mér um allt, eins og góður herforingi. Hvar sem ég birtist í kerrunni minn, var opnað fyrir mér, engar biðraðir, bara elskulegt viðmót allsstaðar. Í vegabréfaskoðuninni horfði lögreglumaðurinn mikið á mig. Hann var alvarlegur á svip, þegar hann sagði mömmu minni að hann ætti fatlaða dóttur sem væri fædd sama ár og ég. Hún væri með Microcephaly. Mamma stóð orðlaus með vegabréfin okkar í hendinni. Ég er nefnilega með alveg sama heilagalla og dóttir lögregluþjónsins. Ótrúlegt, því það eru ekki nema örfá tilfelli í öllum heiminum eins og við, ég og dóttir lögregluþjónsins. Við erum vissulega einstök !
Hótelið okkar var ofsalega flott íbúahótel með sundlaugum og leikvöllum við allra hæfi. En ég var alveg örmagna, dagurinn búinn að vera bæði langur og viðburðaríkur. Það var kærkomið og ljúft að sofna sæll og glaður í faðmi fjölskyldunnar minnar, í sólríka Florída.
Dagarnir 7 - Hrafnkell
Þvílíkur hiti, gott að ég fæddist á Íslandi! Ég hreinlega rennsvitnaði við að fara í göngu í kerrunni minni um hótellóðina. Við kíktum á sundlaugina , keyptum inn og undirbjuggum okkur fyrir “innrásina” miklu í skemmtigarðana í Florída. Þar myndum við heilsa uppá Mínu, Mikka, Bangsimon , Tuma Tígra, Móglí og félaga hans, Gosa og fleiri af uppáhalds teiknimyndapersónunum mínum.
Ég skemmti mér líka stórvel í Epcot center. Þar fékk ég að ýta á mús eða snerta skjá og viti menn....... við það birtust margs konar skemmtilegir tölvuleikir fullir af hoppandi skondnum persónum. Einn daginn fórum við í gönguferð og fengum að kynnast eftirlíkingu af menningu ýmissa landa eins og t.d. Mexico og Ítalíu. Þar rákumst við á Gosa og pabba hans þeir knúsuðu mig bak og fyrir. Við vorum svo heppin á leiðinni, að mæta heilli skrúðgöngu af frægum fígúrum úr Disney myndunum og veifuðu þau mér öll – æðislegt!
Ég verð að segja ykkur að ég fékk til afnota sérútbúinn bíl – þvílíkur lúxus – ég var bara keyrður út og inn í kerrunni – ekkert bras. Ég gat meira að segja boðið fjölskyldunni minni – öllum hópnum, að vera með í bílnum, það fannst mér stuð.
Að heimsækja Sea World var gaman, þar fylgdist ég með höfrungunum og sæljónunum og skoðaði risastór fiskabúr. Allt var þetta spennandi. Sjálfur var ég með teiknaðan höfrung á kinninni en Björn Leví bróðir minn stóran hákarl. Flottir bræður.
Eina hvíldardaginn minn tók ég svo bókstaflega, að ég hreinlega veiktist. Ég fékk hita og gubbaði. Mamma, amma, afi og frænka hjúkruðu mér allan daginn. Það getur tekið á að fara í langferð fyrir lítinn kropp !
Besti dagurinn minn í þessari góðu vildarferð, var að fara í Disney World garðinn. Þá var nú líf í tuskunum – ég hitti Balla og apann úr Skógarlífi. Ég fór í gullskreytta hringekju – ég flaug bæði með Dumbó, Aladdin og andann en hann finnst mér allra skemmtilegastur, hann er svo fyndinn. Þegar hann birtist á skjánum heima hjá mér, tryllist ég alltaf úr hlátri. Þarna í Disneygarðinum var alveg eins og á flugvellinum, ég þurfti aldrei að bíða í röðum. Um leið og kerran mín birtist, opnuðust öll hlið, rétt eins og ég væri konungborinn. Mér fannst flott húsið hans Mikka og hennar Mínu. Þau tóku rosalega vel á móti mér. Þegar við vorum á heimleið, birtust allt í einu Balli og apinn í Skógarlífi og stálu mér. Þeir sögðust vilja eiga mig. Mamma vissi ekkert hvað hún ætti að gera? Fyrst var ég pínu hissa en þegar þeir fóru að knúsa mig svakalega, fór ég að skellihlæja. Amma, afi og allir í fjölskyldunni minn kepptust við að mynda þessa sérkennilegu uppákomu. Ég verð að segja, að ég var bara nokkuð vinsæll þarna í Disneylandi.
Daginn sem ég flaug heim á ný var mér hugsað til höfundarins Walt Disney. Mikið væri hann glaður ef hann vissi hvað lífsverkið hans gladdi mig mikið. Ég skemmti mér ótrúlega vel og góða fjölskyldan mín líka. Ég hugsaði um Vildarklúbb Icelandair. Hvað þeir gleðja fjölskyldur eins og mína, með sínu frábæra framlagi. Þeir létta okkur lífið með að gera svona draumaferð að veruleika
Um okkur
Til að fara í frí eins og eðlilegar fjölskyldur, þurfum við eldri sonur minn að koma þeim yngri fyrir, þar sem hann á við alvarlega fjölfötlun að stríða og krefst mikillar umönnunar. Vissulega eru þetta alls ekki okkar draumaaðstæður. En í sumar urðum við þess aðnjótandi að geta upplifað frí með honum ásamt ástvinum sem komu með sem aðstoðarfólk. Það er vegna framtaks eins og Vildarbarna Icelandair stendur fyrir sem að við gátum upplifað draumaferðina.
Mörgum dettur fyrst og fremst til hugar þá upplifun sem börnin verða fyrir sem eiga í hlut, það er að segja eru fötluð, hafa misst einhvern nákominn eða þar fram eftir götunum. En ég get fullyrt að það er ekki síður upplifun fyrir fjölskylduna alla þar sem aðstandendur eru oft máttvana gagnvart aðstæðum. Í mínu tilfelli var mikilvægt að fá að njóta samveru beggja sona minna í slíku umhverfi sem Disneyland er.
Væntingarnar gagnvart fríinu eru því gríðarlegar, því að sem foreldri eða aðstandandi veistu að svona tækifæri býðst jafnvel aldrei aftur. Við nutum því frísins, umvafin nánustu fjölskyldumeðlimum og gerum okkur grein fyrir því að ferðin er ekki síður mikilvæg foreldrum og systkinunum en börnunum sem styrkurinn er beindur að. Í framtíðinni eru slíkar stundir ómetanlegar til að minnast samleiðarinnar í annars erfiðum aðstæðum.
Samfélagsleg ábyrgð Icelandair
Það var fyrir tilstilli Peggý Helgason að Vildarbarna sjóðurinn var stofnaður. Peggý er einstök mannúðarmanneskja og kom auga á þörf sem var svo sannarlega fyrir hendi og tengdi hana við það sem Icelandair stendur fyrir, ferðalög og upplifanir. Á þeim tíma var Sigurður Helgason eiginmaður hennar, forstjóri fyrirtækisins, hann og starfsfólk hans útfærðu hugmyndina og gerðu hana að veruleika.
Vildarbörn Icelandair er ferðasjóður fyrir langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Markmiðið er að gefa börnum á Íslandi og í nágrannalöndunum tækifæri til ferðalaga ásamt fjölskyldum sínum. Sjóðurinn var stofnaður af Icelandair sumardaginn fyrsta árið 2003. Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með þrennskonar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair. Í öðru lagi með frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er sjóðurinn fjármagnaður með söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair. Fjölskyldurnar fá flugmiða, hótel, og bílaleigubíl ásamt dagpeningum til að kosta ferðina. Þeir sem kannast við einhverja sem hafa fengið slíka ferðastyrki, eru fljótir að lauma einhverju í umslagið og afhenda flugfreyju. En það eru ekki allir sem þekkja góðverkið sem er unnið í hvert skipti sem gefið er til sjóðsins. Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og formaður stjórnar hans er Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Icelandair. Landsbankinn er fjárgæsluaðili sjóðsins.
Til að fræða almenning um hvernig hversu mikil gjöfin er ákváðum við fjölskyldan að deila með ykkur upplifuninni sem við eigum aldrei eftir að gleyma. Við þökkum Icelandair Vildarbörnum og starfsmönnum Icelandair og sérstaklega Peggy Helgason, fyrir sólargeislann sem þeir lögðu inn í líf okkar.
Fjölskylda Hrafnkels Björnssonar.





