Ferðasögur

Ferðalagið hans Sigmars

14.10.2005

Ég heiti Sigurmar og er 9 ára. þann 12. apríl var ég svo heppinn að vera boðið að vera Vildarbarn hjá Icelandair. það var ekkert smá sem fólst í því að vera Vildarbarn því ég fékk að fara í vikuferð með allri fjölskyldunni minni, við erum fjórir bræðurnir og svo eru það mamma og pabbi og svo fékk amma mín líka að koma með. Bræður mínir heita Sigurður Már (13 ára), Davíð Óskar (7 ára) og Brynjar Darri (3 ára).

Ég fékk að velja staðinn og valdi Flórída. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að fara á einhvern stað þar sem er heitt. Við bræðurnir vorum mjög spenntir í allt sumar að bíða eftir að hinn langþráði dagur rynni upp.

Við notuðum allt sumarið í að safna okkur vasapening sem tókst bara mjög vel. Við pössuðum að spara alla peninga sem okkur var gefið og svo gengum við í hús og söfnuðum flöskum.

Loksins kom svo dagurinn, 3. ágúst. Við fórum upp á Keflavíkurflugvöll og svo í loftið klukkan 19:00. Allur aðbúnaður í flugvélinni var mjög góður og mamma og pabbi höfðu keypt handa okkur smá glaðning til að dreifa huganum í ferðinni. Við lentum svo í Flórída klukkan rúmlega 21:00 að staðartíma. Að lokinni vegabréfaskoðun fórum við að sækja bílaleigubílinn sem við fengum afnot af, það var átta manna jeppi. þegar við höfðum komið okkur fyrir í bílnum fórum við að sækja lykilinn að húsinu og ókum svo beint þangað. Þegar við komum þangað urðum við aldeilis hissa, þetta var stórt tveggja hæða einbýlishús með frábærri aðstöðu og stórri sundlaug í garðinum. Þegar við höfðum skoðað allt húsið fórum við að sofa með mikilli tilhlökkun til næsta morguns.

Fyrsta daginn notuðum við svo til að finna matvörubúð og kanna nánasta umhverfi og svo skelltum við okkur auðvitað í sund í okkar laug. Svo annan daginn fórum við í Sea World. Mér fannst alveg ótrúlega gaman að sjá háhyrningana leika listir sínar, toppurinn á sýningunni var svo þegar háhyrningurinn tók upp á því að skvetta vatni yfir okkur svo við urðum öll gegnblaut og svo endurtók hann það í enda sýningarinnar, frábær skemmtun. næsti staður sem við fórum á var svo Krókódíla land og ber nafn með réttu því þarna voru fullt af krókódílnum, stórum og litlum, og svo voru líka allskonar skjaldbökur, fuglar og önnur dýr. Við horfðum á sýningu með krókódílum og fengum svo að setjast á lifandi krókódíll. Mamma tók margar myndir af okkur og við vorum ekkert hræddir. því næst fórum við með lítilli lest um garðinn til að ð skoða meira en svo fór að rigna og þá voru allri tilbúnir að halda heim eftir frábæran dag.

Daginn eftir fórum við bara að flakka á milli búða. Við fórum fyrst í Florida mall og svo í Wal Mart en þetta eru mjög stórar búðir. Við bræðurnir keyptum ýmis konar leikföng og tölvuleiki.

Svo kom loksins að því að fara í Disneyland og það var sko upplifun sem við gleymum aldrei. Við keyptum okkur miða og fórum svo í röðina til að komast inn. Mikil öryggisgæsla var á svæðinu og mikið lagt upp úr að allir væru öruggir. Fyrst hittum við Mikka Mús, Gosa, Guffa , pabba hans Gosa, Snar og Snöggur voru líka þarna og margir fleiri. Við skoðuðum húskynni Mikka og Mínu og búa þau mjög vel. Við fórum líka í mörg leiktæki eins og kappakstursbíla sem við fengum að aka sjálfir, amma var farþegi hjá mér og hún sagði mér að ég væri góður ökumaður. Við sáum líka sýningu með hundum, köttum, músum, dúfum og svínum. Við trúðum varla okkar eigin augum þetta var svo flott sýning og alveg ótrúlegt hvað er hægt að kenna dýrunum að gera. Að lokinni sýningu fórum við svo í lest sem keyrði um himingeiminn og fengum að taka þátt í stjörnustríði með Bósa Ljósár. Við skoðum margt fleira en það er alltof mikið til að vera að telja það allt saman upp. Þessi dagur og reyndar öll ferðin eru eitthvað sem ég mun örugglega muna alla tíð.

Mig langar að þakka Icelandair fyrir að bjóða okkur í þessa ferð og öllum sem hafa gert þetta að veruleika fyrir mig.

Kærar kveðju til ykkar allra

Sigurmar Gunnar og fjölskylda.

Ferðalagið hans Sigmars

Ferðalagið hans Sigmars

Ferðalagið hans Sigmars

Ferðalagið hans Sigmars

Ferðalagið hans Sigmars

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.