Ferðasögur

Ævintýrið hans Óskars Óla

27.4.2005

Flórída ferðin mín

Þetta er ævintýri sem byrjaði á sumardaginn fyrsta árið 2004. Það var þá sem ég var valinn Vildarbarn Icelandair ásamt 11 öðrum börnum. Ég gat valið mér ferð þangað sem mig langaði að fara.

Það var svo föstudaginn 19. nóvember sem við lögðum af stað út á flugvöll ég, pabbi, mamma, Siggi bróðir minn og Harpa kærastan hans. Kl. 6 um kvöldið brunaði flugvélin svo út í loftið.  Ég öskraði af gleði.  Ég var svo spenntur og glaður að ég gat alls ekki sofnað á leiðinni.  Ég var þess vegna orðinn svolítið þreyttur þegar við komum loksins á áfangastað í Orlando,  búinn að vaka í 22 klukkutíma.

Við vorum svo heppin að hitta Heidi stöðvarstjóra Icelandair,  hún fylgdi okkur í gegn um flugstöðin sem er ótrúlega stór.  Þar tók Jenifer á móti okkur og fylgdi okkur á bílaleiguna og svo alveg heim að dyrum.  Við hefðum ekki viljað vera án hennar.
 
Við fengum flottan bíl og húsið var frábært, allt svo stórt og sundlaug í garðinum.  Fyrsta daginn sváfum við bara út og hvíldum okkur, fórum smá bíltúr um nágrennið, fundum matvörubúðina og svoleiðis. 

Annan daginn fórum við í Disney world.  Fyrsti garðurinn sem við fórum í var Magic kingdom.  Veðrið var frábært þegar við keyrðum í garðinn, 26-28°C hiti og sól.  Við kviðum svolítið fyrir því að rata þetta ekki, en Never lost sýstemið (ómissandi, ótrúlega þægilegt og einfalt) í bílnum sá fyrir því og síðan frábærir bílastæðaverðir sem vísuðu fólki rétta leið eftir að inn í garðinn var komið.  Það er gott að hafa P merkið með að heiman og fá að leggja í stæði fatlaðra sem eru rétt við innganginn.

Eftir að búið var að kaupa miða og fara í gegn um öryggisgæslu löbbuðum við af stað, þetta var ótrúlegt ævintýri.  Fyrst hittum við dýrin úr ævintýrinu um Hróa hött, en svo blasti höllin við í allri sinni dýrð og þar var sýning að byrja. 

En þetta var allt of mikið af því góða og ég fór bara að gráta ég var svo glaður og spenntur.  Næst heimsóttum við Mikka mús, það var mjög gaman.  Við vorum í garðinum fram á kvöld.  Þetta var frábær dagur.

Næsta dag fórum við í Animal Kingdom.  Við fórum í safaríferð, keyrðum um á Safaribílum, það voru sko rosa trukkar.  Í garðinum voru ljón, tígrísdýr, fílar, gíraffar og mörg önnur dýr sem ég hafði aldrei séð nema á myndum því þetta er fyrsta ferðin mín til útlanda.   Það var alveg eins og við værum í Afríku.  Við hittum Mínu, Andrés og Guffa, þau voru líka í safaríferð um “Afríku”.

Í Animal Kingdom fórum við í frábært leikhús og sáum sýningu úr Lion king, þar voru loftfimleikamenn, eldgleypar, söngvarar og svo Simbi, Tímon, Pumba og allir þeir.

Á fjórða degi ætluðum við að fara í Epcot en okkur vantaði  straumbreyti til að geta hlaðið myndavélina og símanna,.  Þess vegna var farið í búðir.  Við byrjuðum í Depot, þá Best buy en síðan fórum við í Florida mall og í Radioshack fengum við loksins þennan straumbreyti.  En fyrst mamma og pabbi komust í mollið breyttist dagurinn í verslunarferð.  Það var í lagi því mér fannst gaman í Florida mall.  Alltaf eitthvað nýtt að sjá.

Einn morguninn þegar við komum út var snákur í sundlauginni.    Pabbi veiddi snákinn í net og henti honum út í skóg.  Næsta dag voru tveir froskar þar.   Ég komst að því að froskar hoppa alveg rosalega hátt og langt.

Þriðji Disneygarður sem við fórum í heitir Epcot.  Þar gátum við heimsótt mörg lönd.  Á einum stað voru húsin eins og í Noregi og fólkið sem vann þar var allt frá Noregi.  Þar voru norksar vörur seldar og sýningar um Noreg.  Þar var líka hægt að heimsækja Mexico, Japan, Kína, Þýskaland, Bretland o.fl.  Þetta var mjög skemmtilegt.  Í Epcot er risa stór kúla.  Inni í henni er sýning.  Það er keyrt um í vögnum sem fara alveg upp í topp á kúlunni.  Það fannst mér mjög gaman,

Einn daginn sáum við geimflaug skotið á loft.  Þakkargjörðardaginn notuðum við svo til að skoða geimstöðina á Canaveralhöfða.  Þar sáum við allskonar geimflaugar, hylki sem geimfarar höfðu komið með til jarðar og  fengum að skoða geimskutluna Explorer sem hefur farið margar ferður út í geiminn. 

Við fórum í bæ sem heitir Kissimmee.  Það var eins og að fara í eitt stórt tívolí. Verst að bílasýningin sem pabbi ætlaði að skoða var bara einn dag í viku.

Síðasti Disney garðurinn sem við fórum í var MGM studios.  Þar er verið að sýna hvernig kvikmyndir eru gerðar og ýmislegt sem tilheyrir því..  Við sáum td. hvernig er gert þegar verið er að mynda í sprengingar í vatn, við sáum flutningabíl brenna (auðvitað allt í plati) og margt fleira skemmtilegt. Við fórum líka í þrívíddarbíó.  Þá er eins og leikararnir komi út úr tjaldinu og alveg upp að manni.  Kl. 6 var kveikt á jólaljósunum og það snjóaði í nærri 30° hita.  Ótrúlega flott.

Ég gerði margt mjög skemmtilegt í Flórída.  Veðrið var mjög gott og ég var alltaf á stuttermabol.  Mig langaði að vera lengur  og vona að ég eigi eftir að fara til Florida aftur.

Ég og fjölskyldan mín eru mjög þakklát öllum þeim sem gera það mögulegt að bjóða Vildarbörnum í þessar ógleymanlegu ferðir. Þetta var draumur sem okkur hafði ekki dreymt um en rættist samt.

Takk fyrir.

Óskar Óli Erlendsson

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Ævintýri Óskars Óla

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.