Ferðasögur
Þórdís Aspar kom til Íslands frá Noregi á vegum Vildarbarna
Hæ, hæ ég heiti Þórdís og er 13 ára . Ég fæddist á Íslandi og flutti til Noregs þegar ég var 3 ára. Ég á heima í sveitinni fyrir utan Þrándheim hjá Brynju mömmu, Ágústu systur og John Arve Stjúppabba. Ég er líka oft í heimsókn hjá Hermanni Pabba mínum sem býr í Osló með bræðrum mínum Halli og Stíg og Sísí Stjúpmömmu.
Ég var svo heppin í febrúar að Vildarbörn buðu okkur öllum til Íslands, gamla góða Íslands sem mér finnst best. Ég hef oft verið í heimsókn á Íslandi en það voru liðinn 3 ár frá því ég var þar síðast. Við vorum á Íslandi í 2 vikur. Fyrst var ég í viku með pabba mínum og svo í viku með mömmu minni.
Fyrir mér var þetta algjör draumaferð. Við gerðum alltaf eitthvað skemmtilegt á hverjum degi. Eitt af því var að hitta ömmur og afa, frændfólk og vini, það var svo gott að geta knúsað þau og kysst. Við gerðum líka svo margt saman eins og að fara í hlýjar útisundlaugar og borða á uppáhalds veitingastöðunum mínum (það er svo mikið gott sem ekki er til í Noregi sem er til á Íslandi ). Við fórum líka í húsdýra- og fjölskyldugarðinn, það var svolítið kalt en samt voðalega gaman að vera þar. Ég fór með pabba og Sísí í Bláa Lónið, það er einn af uppáhaldsstöðunum mínum á Íslandi. Svo fórum við líka að borða í Perlunni enn ég hef aldrei verið þar áður, það var æðislegt. Ég Þurfti ad taka blóðprufu á meðan ég var á Íslandi og þá hitti ég doktor Ólíver á barnaspítalanum og við urðum góðir vinir. Síðustu helgina á Íslandi var okkur Ágústu og mömmu og John Arve boðið á söngleikinn Grease og eftir sýninguna fengu ég og Ágústa að fara baksviðs og hitta Jónsa og Birgittu. Við fengum eiginhandaráritanir og máttum taka fullt af myndum með þeim!!!
Við viljum öll þakka Flugleiðum, Vildarbörnum og Styrktarfélagi krabbameinsjúkra barna fyrir að hjálpa okkur að uppfylla drauminn hennar Þórdísar.
Takk fyrir okkur.
Þórdís Björk Aspar og fjölskylda.












