Ferðasögur

Ásdís og fjölskylda áttu skemmtilegar stundir í Ameríku

22.9.2004

Loksins rann upp dagurinn sem við erum búin að bíða eftir, fimmtudagurinn 9. júní.. Við fórum saman ég, mamma og pabbi, tvíbura-systur mínar Agnes og Elín,Guðbjörg, systir hans pabba og Skúli maðurinn hennar. Vá við systurnar vorum ýkt spenntar þennan dag því við höfðum aldrei farið í flugvél. Við fórum upp á flugvöll kl. 14:00 og höfðum nógan tíma fyrir okkur, en svo var komið að því að fara upp í flugvél og fannst mér alveg frábært þegar flugvélin fór í loftið. Ég var ekkert flughrædd.

Þegar við komum til Florida “úff” hitinn sem tók á móti okkur. Það gekk mjög vel að finna húsið og á leiðinni fórum við í búð til að kaupa eitthvað að borða. Húsið var rosalega flott, mjög stórt og með sundlaug úti. Systur mínar sáu einhverjar dauðar pöddur og urðu ýkt hræddar, mér fannst fyndið að sjá þær og hló bara af þeim. Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir fórum við að sofa en þá var klukkan orðin 05:00 að morgni heima en ekki nema 01:00 í Florida.

Næsta morgun þegar við vöknuðum eldsnemma var sólin að koma upp og hitinn var svakalegur 37°C. Við fórum í sundlaugina í topp og nærbuxum því það átti eftir að kaupa sundföt á okkur og í sundlauginni var pínulítill froskur, mér fannst það frábært því ég hef svo gaman af dýrum. Ég og pabbi tókum hann og fórum með hann í vatnið sem var rétt hjá húsinu. Síðan var haldið af stað í búð til að kaupa það sem vantaði en fyrst var komið við á MacDonalds, nammi, namm. Ég borðaði samt ekki mikið því ég vil helst bara borða ein svo ég þurfti að venjast því að borða með öllum hinum. Jæja svo fórum við í búð og keyptum það sem við þurftum, það er sko allt til í Florida. Við fórum svo rúnt til að skoða okkur um. Pabbi var mjög duglegur að rata þó að ég hafi alltaf verið að spyrja hann hvort hann væri nokkuð villtur, he he.

Á sunnudeginum fórum við í Gatorland eða krókadílaland Við vorum ekki nema tíu mínútur að keyra þangað. Við systurnar létum taka mynd af okkur með lítinn krókadíl og eiturslöngu, ég hélt á eiturslöngunni. Það var rosalega gaman og sjá alla krókadílanna , skjaldbökurnar og fullt af dýrum, ég lét mömmu taka myndir af mér við hliðina á þeim öllum.

Við ákváðum að fara ekki í Disney-garðinn fyrr en á mánudeginum svo við værum búin að venjast sólinni. Við þurftum að fresta því einn dag vegna veikinda. Og á þriðjudeginum lögðum við af stað og vorum ekki nema 20 mín. að keyra þangað.

Vá, hvað allt var flott og stórt. Við byrjuðum á því að fara í einskonar rútu af bílastæðinu og svo í lest að garðinum. Vá, þetta var frábær dagur. Garðurinn er örugglega stærri en bærinn sem ég bý í.

Við systurnar létum taka myndir af okkur með teiknimynda-persónunum, ég vildi samt ekki vera með öllum. En fyndnast var þegar við hittum stjúpuna í Öskubusku, ég vildi ekki taka mynd af mér með henni en systur mína fóru til hennar og hún skellti hausunum þeirra saman og ýtti þeim svo í burtu þegar búið var að taka mynd hehe, ég hugsaði bara “róa sig með frekjuna” en þetta var ýkt fyndið. Ég fór í minn fyrsta rússibana þarna, ég ætlaði ekki að fara en þegar ég sá að mamma og Agnes systir mín voru fljótar í honum vildi ég fara líka (hann fór ekki á hvolf) svo ég dreif mig og ég hló og hló og öskraði því þetta var svo gaman. Það var sýnd sýning í Öskubusku-kastalanum þar sem nokkrar teiknimynda persónur komu og var hún alveg frábær.

Um kvöldið var svo skrúðganga með öllum  persónunum á vögnum með fuuulllllllt af ljósum Vá hvað þetta var fallegt.
Ég var ýkt ánægð með þennan dag og ýkt þreytt enda búin að labba frá því um klukkan10:00 um morguninn til 10:00 um kvöldið. Ég keypti mér tvö bangsadýr þarna “Nemó og Dúmbó”.

Fimmtudaginn 17. júní ákváðum við  að fara í Bush Garden í Tampa, en þar eru öll villtu dýrin og tívolí. Við byrjuðum daginn á því að flagga íslenska fánanum fyrir framan hús vegna 17. júní, en pabbi og mamma tóku með sér lítinn fána.

Það var svolítið langt að keyra þangað en alveg þess virði. Vá öll dýrin sem ég sá og auðvitað fór ég aftur í rússibana. Þetta var rosalega góður dagur.

Við lentum í einu ævintýri. Við vorum að vona það áður enn við fórum út, að við fengum að sjá þrumur og eldingar. Ó já, það fengum við sko að sjá á hverjum degi alltaf seinnipart dags. Eitt skipti var þetta alveg fyrir ofan okkur og voru lætin rosaleg. Við vorum að keyra heim og það rigndi rosalega með þessu. Við erum í innkeyrslunni og Skúli hleypur inn til að opna, svo pabbi og Guðbjörg frænka. Við stelpurnar og mamma erum að opna hurðina á bílnum þegar þruman og eldingin kom á sama tíma og eldingin fer á milli pabba og Guðbjargar. Vá hvað okkur brá, við lokuðum hurðinni á bílnum skíthræddar en hlupum svo inn og í öllum látunum gleymdist lykillinn í útidyraskránni á húsinu og uppgötvaðist það ekki fyrr en daginn eftir “úpps” og við í Ameríku.

Þriðja síðasta daginn ákváðum við að fara í Sea World. Hann var ekkert síðri en allir hinir garðarnir. Ég var með æði fyrir hákörlum á þessum tíma og þarna sá ég þá, vá tennurnar í þeim. Sýningarnar hjá hvölunum, háhyrningunum og “keikó” fiskum. Þetta var frábært, og þeir skvettu langt upp til áhorfenda, það var alveg æðislega fyndið og ég hljóp upp til að blotna ekki.

Það er svo margt hægt að skoða þarna í Ameríkunni. Við fórum á ströndina, Cocoa beach, eða fjöruna eins og ég kallaði þetta, sem var rosalega gaman hitinn þann dag fór í 42°C. Við sáum skakkt hús á einni götunni og hús á hvolfi sem við fórum inn í. Fórum í sund á morgnanna og á kvöldin. Þetta var algjör draumur og frábær ferð.

Við systurnar vorum samt komnar með smá heimþrá en núna er ég oft að spyrja mömmu “hvenær förum við aftur þangað”.
Rétt áður en við lentum í Keflavík þá var mér boðið inn í flugstjórnarklefann, þá varð ég montin.

Við ákváðum þarna úti að safna saman öllum smápeningum og gefa til vildarbarna svo aðrar fjölskyldur gætu látið draum sinn rætast eins og við fengum.

Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Ásdís Helgadóttir og fjölskylda.

 Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Ásdís og fjölskylda

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.