Ferðasögur

Björn skemmti sér konunglega á Flórída

30.8.2004

Loksins kom að því að við pabbi lögðum af stað til Bandaríkjanna. Við fengum ferðina hjá Vildarbörnum og við eigum seint eftir að geta þakkað þeim nógu vel.

Þegar við komum á flugvöllinn var ég orðinn svolítið kvíðinn að þurfa að fljúga í tæpa 8 klst sem voru reyndar tæpir 9 tímar af því að flugvélin þurfti að taka smá krók framhjá óveðri. Þegar við vorum lentir í Bandaríkjunum fengum við nýjan bíl með loftkælingu sem var alveg nauðsynlegt vegna hitans. Það gekk nú ekkert alltof vel að finna hótelið því að það var orðið dimmt og við höfðum hvorugur komið áður til Bandaríkjanna. Við villtumst þó nokkuð en fundum svo hótelið fyrir rest eftir tveggja klst leit. Hótelið var rosalega flott með risastórum garði og fínum matsölustað þar sem við borðuðum alltaf á morgnana. Íbúðin var mjög flott með loftkælingu og tveimur sjónvörpum.

Á daginn fórum við út um allt, t.d á veitingastaði, í búðir t.d. Florida Mall sem er risastór verslunarmiðstöð. Við fórum líka í tölvubúð, CompUSA þar sem ég keypti tölvuíhluti á meira en helmingi lægra verði en á Íslandi.
Einn daginn fórum við í rosa langan bíltúr, við keyrðum framhjá Tampa og fórum niður á Cape Canaveral. Þar byrjuðum við á að skoða Kennedy Space Center og þar sáum við nokkrar eldflaugar og geimskutlu. Síðan keyrðum við niður að Cocoa Beach og fengum okkur göngutúr á stærstu strönd sem við höfum séð og gætu sennilega allir Íslendingar fengið sér sólbað þar í einu án þess að það væri þröngt. Á leiðinni til baka frá Cape Canaveral sáum við vörubíl sem var á hinni leiðinni og hafði oltið og myndað margra kílómetra umferðarteppu. Það var heppilegt að við vorum ekki á leiðinni til Cape Canaveral þá.

Við fórum á marga góða veitingastaði og borðuðum mjög góðan og hlægilega ódýran mat.  Við fórum í Sea World og sáum þar alls konar dýr, t.d mörgæsir, lunda, hákarla og fleiri dýr. En við gátum ekki stoppað lengi vegna hitans sem var alveg að kála okkur, enda fór hann yfir 41°C. 

Síðasta daginn fórum við í Florida Mall og keyptum það sem eftir var að kaupa. Við fengum okkur einnig að borða, ég fékk mér rosalega góða pítsu og pabbi fékk sér tælenskan mat.   Síðan fórum við á flugvöllinn. Við urðum að bíða í 4-5 klukkutíma eftir að komast í flugvélina vegna þess að við vorum mættir alltof snemma.  Rétt áður en við fórum í flugvélina var íslensk kona sem átti í vandræðum með að koma 6 ára bandarískum frænda sínum í flugvélina. Það hafði eitthvað farið útskeiðis með flugpöntunina þannig að hann hafði engann til að fylgja sér svo að pabbi bauðst til að leyfa honum að vera með okkur pabba og síðan tók pabbi stráksins á móti honum í Leifstöð.  Það eina neikvæða við ferðina var hvað flugið til og frá Bandaríkjunum var langt en það var samt alveg þess virði. Þegar við komum heim til Íslands keyptum við smá nammi í fríhöfninni og þegar heim var komið lagði ég mig eftir að hafa vakað í 22 klukkutíma.

Það var rosalega gaman að fara til Bandaríkjanna og ég væri alveg til í að fara aftur.

Ég vil þakka Flugleiðum og Vildarbörnum fyrir ferðina sem á eftir að lifa í minningunni.

Kveðja
Björn Alfreðsson
Björn skemmti sér konunglega

Björn skemmti sér konunglega

Björn skemmti sér konunglega

Björn skemmti sér konunglega

Björn skemmti sér konunglega

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.