Ferðasögur
Kjartan fór á tónleika með uppáhalds hljómsveitinni sinni
Jæja þá erum við komin heim úr draumaferðinni okkar til Orlando. Ferðin gekk rosalega vel og var algjör draumur frá upphafi til enda. Við vorum búin að spá og spekúlera á Netinu áður en við fórum og ákveða hvað við ætluðum að skoða í Orlando, en það plan breyttist þegar við sáum að við kæmumst ekki yfir það allt á einni viku.
Við fórum út á flugvöll í brjáluðu roki og rigningu þriðjudaginn 2. mars, vorum pínu hrædd um að fluginu yrði seinkað en það stóðst allt og við vorum á leið til Orlando. Ferðin í gegnum flughöfnina í Orlando gekk betur og fljótar fyrir sig en við höfðum haldið og við sóttum bílinn á Hertz bílaleiguna. Við villtumst smá á leiðinni á hótelið en komumst þangað að lokum og hvíldum okkur fyrir næsta dag sem var búið að ákveða að yrði eytt í verslunarferð. Stefnan var sett á Beltz outlet mallið í Orlando þar sem hægt er að gera frábær kaup á allskyns varningi. Þar var mikið verslað og verðlagið frábært fyrir okkur Íslendingana.
Næsta dag, fimmtudag fórum við í Universal Studios. Veðrið var alveg meiriháttar, sól og hátt í 30 stiga hiti. Universal garðurinn var mjög skemmtilegur, þar fórum við í hin ýmsu tæki s.s. jarðskjálftatæki, Jaws tækið og fleiri skemmtileg tæki. Um miðjan dag fórum við yfir í Island of Adventure garðinn sem er við hlið Universals garðsins. Hann var ekki síðri en hinn garðurinn og hefðum við viljað eyða sitt hvorum deginum í þessum görðum í stað þess að fara í báða garðana á einum degi. Það var ansi þreyttur en glaður hópur sem fór heim á hótel um kvöldið (villtumst smá).
Á föstudeginum var búið að ákveða að keyra til Tampa sem er ca. 90 mínútna keyrsla frá Orlando. Aksturinn þangað gekk mjög vel, fórum I-4 þjóðveginn til Tampa og beint í dýragarðinn Lowery Park Zoo sem er mjög skemmtilegur dýragarður. Veðrið var frábært að venju, og við dunduðum okkur í dýragarðinum fram eftir degi. Þar sáum við fiska af öllum gerðum, fugla, krókódíla, apa, birni, úlfa, slöngur og fleira og fleira. Eftir dýragarðsheimsóknina var komið að því að fara á aðal viðburð ferðarinnar til Tampa, eða risa rokktónleika með hljómsveitinni LinkinPark sem er uppáhalds hljómsveitin hans Kjartans. Frábært skipulag var á tónleikunum, góð öryggisgæsla og allt til fyrirmyndar. Kjartan og mamma fóru á tónleikana en pabbi, Kári og Alma fóru í University Mall og gleymdu sér í KB-toys outlet búð, en komu svo aftur og sóttu okkur á tónleikana, þeim tókst meira að segja að kíkja smá inn í tónleikahöllina þar sem gleymdist að loka hliðinu á bakvið. Tónleikarnir voru frábærir!!! Þrjár upphitunarhljómsveitir og svo aðal númerið LinkinPark sem voru að enda tónleikaferð sína um Ameríku og Evrópu. Það var gaman að heyra að þeir gáfu hluta af aðgöngumiðainnkomu í sjóð fyrir börn með sérþarfir. Það var einstök upplifun fyrir Kjartan að fara á þessa tónleika, hversu margir fá að sjá uppáhalds hljómsveitina sína á sviði !!! Ekkert smá flott. Við keyrðum til baka til Orlando um kvöldið (nóttina) og gekk ferðin vel.
Á laugardeginum fórum við í SeaWorld, þar var margt að skoða og skemmtilegar sýningar í gangi með háhyrningum, höfrungum og sæljónum. Þar voru líka skemmtileg tæki og rússibanar en við lögðum ekki í að fara í risa stóra rússibanann. Við fórum samt í stórt tæki sem hét Atlantis þar sem maður situr í bát sem fer um hús og siglir svo þvert niður bratta og það skvettist yfir mann vatnið........rosa gaman!!!
Sunnudeginum eyddum við svo í Magic Kingdom í Disney World, það var MIKILL mannfjöldi í Magic Kingdom þennan dag og tók okkur langan tíma að komast inn í garðinn. Raðirnar í tækin voru 40-50 mínútna langar og þá kom sér vel að vera búin að fá passa fyrir börn með sérþarfir sem gefur manni leyfi til að fara framfyrir í röðunum. Til að fá svona passa þá þarf að vera með vottorð frá lækni á ensku sem skýrir í hverju veikindi barnsins eru fólgin. Þetta vottorð fer maður með í guest services rétt innan við hliðið í garðinn og fær passa sem gildir í alla Disney garðana. Samskonar passa er hægt að fá í Universal garðinn. Við sáum margt í Magic Kingdom, þar voru allskyns sýningar í gangi t.d. þrívíddarbíó þar sem maður fékk að upplifa frábæra þrívíddar sýningu þar sem ýmsar brellur voru notaðar s.s. að blása vindi á mann eða sprauta vatni eftir því hvað var að gerast í myndinni, alveg frábært! Við vorum í garðinum alveg fram að flugeldasýningu yfir kastala Öskubusku. Sýningin var stórfengleg og vel þess virði að bíða eftir fram á kvöld. Verra var að komast aftur til baka á gríðarlega stórt bílastæðið og að finna bílinn sinn!!!! En við lentum í því að týna bílnum á þessu risa bílastæði vegna þess að við höfðum ekki fattað bílastæða merkinga kerfið þarna en hann fannst að lokum, sem betur fer!!
Á mánudeginum fórum við í MGM studios garðinn í Disney, hann var líka mjög skemmtilegur. Þar sáu mamma og Alma sýningu með Fríðu og dýrinu á meðan karlmennirnir fór í hina skelfilegu lyftu í Tower of Terror þar sem maður hrapar niður einar 13 hæðir!! Í MGM garðinum fengum við líka að sjá hvernig brellur voru gerðar í Indiana Jones myndinni og hvernig umhverfið leit út í myndinni Honey I shrunk the kids. Við fórum líka og sáum Litlu hafmeyju sýningu á sviði og fórum í flugferð yfir Neverland með Pétri Pan og félögum. Við sáum líka mjög skemmtilega þrívíddar bíósýningu með Prúðuleikurunum. Mjög skemmtilegur dagur sem við áttum í MGM garðinum.
Síðasta daginn okkar í Orlando fórum við snemma af hótelinu og kíktum í ekta amerískan Supermarkað Wal-Mart, þar sem við gerðum loka innkaupin! Ferðin heim gekk vel, en tímamismunurinn var erfiður. Við lentum í brjáluðu roki og rigningu snemma morguns þann 10. mars, alveg eins og þegar við fórum út.
Þessi ferð var alveg stórfengleg og gekk svo rosalega vel í alla staði. Allir í fjölskyldunni voru með stjörnur í augunum eftir ferðina og við munum lifa lengi á öllum minningunum úr þessari glæsilegu ferð. Við viljum þakka Icelandair og Vildarbörnum fyrir að gera okkur kleift að fara í draumaferðina okkar og vonum að fleiri fjölskyldur langveikra barna munu einnig njóta svona yndislegrar ferðar í framtíðinni.
Kærar kveðjur og takk fyrir okkur,
Arndís
Ásgrímur
Kjartan
Kári og
Alma








