Ferðasögur

Alva Lena fór í draumferðina til Flórída

15.4.2004

Fyrsta desember síðast liðinn vorum við mamma mín hún Lísa, pabbi sem heitir Hermann, litla systir mín Lilja Sóley og ég Alva Lena svo heppin að fá að fara í einstaka ferð til Disney World í Flórída.

Flugið tók langan tíma en þegar við lentum á flugvellinum í Flórída tók kona sem heitir Linda á móti okkur og hjálpaði okkur að komast á hótelið svo við myndum ekki villast. Við lentum svo seint að við urðum að fara beint í rúmið. Morguninn eftir vöknuðum við við fuglasöng og glampandi sólskin sem er ekki það sem við eigum að venjast á Íslandi í desember.  Það fyrsta sem pabbi vildi prófa var morgunmaturinn á McDonald’s, það var frábært.  Síðan fórum við í kringluna til að kaupa okkur sumarföt til að vera tilbúinn daginn eftir til að fara í Disney World.

Disney World reyndist vera allt sem við höfðum ímyndað okkur og meira til.  Við sáum margar sýningar eins og Tarzan, Pocahontas, Lion King og uppáhald allra Mauralíf.  Við fórum meira að segja til Afríku, ekki í alvörunni, en það var alveg eins og við værum þar þegar við fórum í safarí ferð sem var alveg eins og alvöru Afríku safaríferð.  Við sáum ljón og flamingó fugla og fullt af dýrum sem ég hafði aldrei séð áður.  Jeppinn sem við vorum í bjargaði litum fílsunga sem var í hættu, það var frábært að geta hjálpað honum.

Daginn eftir fórum við í rosalega langan bíltúr til strandar sem heitir Daytona beach, þar fórum við á kappakstursbraut og við pabbi fórum í ferð sem var alveg eins og að vera í alvöru kappakstri.  Pabbi lét kappakstursbílinn fara alveg á hvolf og ég var alls ekki hrædd.  Mamma og Lilja fóru líka í svona kappakstursbíl en mamma gat ekki látið hann fara á hvolf.  Eftir þetta fórum við á mjög fallega strönd í Daytona og við löbbuðum aðeins út í sjóinn og urðum blaut en það var í lagi.

Þar sem við vorum í fríi þá urðum við að fara í búðir og keyptum gjafir handa vinum okkar og fjölskyldu.  Ég keypti mér bol með mynd af mér og Britney Spears framan á honum, og Lilja fékk bol með mynd af henni og þrem prinsessum.  Við keyptum fullt annað en ég væri alveg í mánuð ef ég ætlaði að skrifa um það allt. 

Daginn eftir verslunarferðina fórum við í Sea World og það var rosalega gaman.  Við sáum alls konar sjávardýr og við sáum hval eins og Keikó leika alls konar listir.  En það sem var skemmtilegast var að fara í vatnsrússíbana,  ég hafði aldrei farið í rússíbana áður og þessi endaði ofan í vatni.  Það var frábært.  Mamma og Lilja fóru fyrstar en pabbi varð að tala lengi við mig áður en ég samþykkti að fara með honum.  En þegar ég fór af stað þá gat ég ekki hætt að hlæja því þetta var svo gaman.

Síðasta daginn okkar í Flórída ákváðum við að eyða deginum á ströndinni.  Við fórum á strönd sem heitir Cocoa beach og sjórinn var frábær og sandurinn svo fallegur.  Við grófum Lilju í sandinn og þetta var dagur sem ég gleymi aldrei.  Öll ferðin var ógleymanleg.

Þessi ferð var eitthvað sem mig og fjölskyldu mína hafði alltaf dreymt um.  Ég get ekki skrifað hve þakklát við erum ykkur fyrir að bjóða okkur.  Við þökkum öllum sem komu að þessu.  Við viljum líka senda öllum, sem hafa hjálpað öðrum veikum krökkum að komast í svona ferð og láta draum sinn rætast, kærar kveðjur.

Kærar þakkir 
Alva Lena,
Lilja Sóley,
Lísa Bryndís
og Hermann

Alva Lena

Alva Lena

Alva Lena

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.