Ferðasögur
Hekla og Katla skemmtu sér vel í Orlando
HÆ,
VIÐ ERUM KOMNAR AFTUR HEIM FRÁ ORLANDO ÞAÐ VAR ÆÐI, ÆÐI, ÆÐI !!!!
Við fórum út á föstudegi þann 23 og komum aftur heim á sunnudagsmorgni þannig þetta voru 8 daga og hver einasta dagur var vel nýttur. Flugið gekk ágætlega hjá okkur systrum auðvitað fékk Hekla smá köst en við vorum vakandi allan leiðinni þar til við vorum að fara að lenda alveg týpísk fyrir börn segir mamma gamla freyjan, freyjurnar voru yndislegar um borð og voru þolinmæðin uppmálaðar. Eftir góða flugferð vorum við komnar til útlanda og nú fékk Hekla að kynnast því að það þýðir ekki bara að fara til Bandaríkjanna að þurfa að fara uppá spítala í öll þau leiðindi heldur getur þetta verið svaka skemmtilegt og það var yndislegt að kynnast því.
Þær systur voru allar uppveðraðar eftir lendingunna og þá var náð í bílaleigubílinn stóran van þýddi ekkert annað og við fengum NEVER LOST system í hann, við fjölskyldan mælum með því þetta er tær snilld þetta tæki ekkert vesen tækið leiðbeinir þér. Mamma hafði einmitt verið svo heppin að vinkona hennar hafði bent henni á þetta.
Fyrsta daginn fórum við í skoðunarferðir. Farið var í TOYS R US og keypt kerrur fyrir okkur systur sem nýttust mjög vel alla ferðina og mun Heklu kerra nýtast henni vel þegar hún fer til Boston á þessu ári.
það var farið í Sea World og það var alveg meiriháttar fyrir alla fjölskyldunna á sjá alla fiskana litla sem stóra, selina, háhyrninga og höfrungna leika listir sínar þetta var frábær skemmtun. Það var farið í rússínbana og í sumum varð maður svolítið blautur á eftir og í öðrum varð mamma ansi skelkuð því hún er svo lítill í sér ha,ha,ha. En við systkinin höfðum gaman af. Þarna var margt að skoða og gera og fór heill dagur í það. En þetta er staður sem engin má láta fara framhjá sér ef maður fer til ORLANDO.
Húsið sem við vorum í var sumarhús með sundlaug úti en byggt yfir það með flugnaneti. Þetta var frábær aðstaða með þvottavél og þurrkara og öllum græjum 2 klósett og 4 svefnherbergi. Húsið var staðsett mjög miðsvæðis og gott að ferðast í allar áttir og aldrei klikkaði NEVER LOST KERFIÐ í bílaleigubílnum. Þessi hús eru í eigu einstaklinga sem leigja í gegnum Holiday Homes of Orlando og gestir geta haft aðgang að tveimur golfvöllum í nágrenninu. Þetta er gott fyrir stórar fjölskyldur og eins ef 2 fjölskyldur fara saman. Einnig er víst hægt að fá minni hús og einnig stærri...
Við fórum í Disney og sáum Mikka mús, Mínu, Þyrnisrós,Öskubusku bara nefndu það þetta var algjört upplifelsi ekki síður fyrir mömmu, pabba, afa og Ebbu að sjá hversu vel við systurnar skemmtum okkur og við fengum myndir af okkur með Mínu og Mikka.
Mína reyndi meira segja að taka Mínu töskuna hennar Kötlu af henni. Við systurnar vorum svaka fínar í bleikum Mínubuxum, með Mínuhatt og tösku. Mamma keypti Öskubusku kjól handa Heklu og alla fylgihluti með kórónu og allar græjur og Þyrnirós kjól fyrir Kötlu með öllu. Við erum sko búnar að vera á fullu í prinsessuleik síðan við komum heim.
Við heimsóttum 1 garð af 4 því þessar garðar í Disney eru svaka stórir og margt að sjá og það fór alveg heill dagur í þennan eina garð Magic Kingdom. Við gátum farið í nokkur tæki sem voru akkúrt fyrir okkar aldur og við skríktum af hlátri í litla rússíbananum og í tebollunum úr Lísu í Undralandi.
Við kíktum í Florida Mall og systkini mín versluðu fyrir peningana sem þau höfðu safnað sér í jólagjöf og það var margt að sjá. Eins fórum við í Outlet búðir en þar er hægt að gera fáranlega góð kaup og pabbi sleppti sér alveg í fatagolfbúð eins og honum finnst nú leiðilegt að fara í búðir þá varð mamma að draga hann úr öllum þessum outlet búðum en þetta eru 4 stórar byggingar. BELZ heita þær og eru á International Drive.
Við sáum stærsta Bangsa og dúkku í heimi og hús á hvolfi og tréin og allt saman...Hekla játaði því að hún hefði snúið húsinu við en Katla kenndi hundinum sínum um..
Mamma og pabbi fóru síðan í Universal garðinn með 3 stóru systkinin meðan við systurnar skemmtum okkur hjá afa og Ebbu. Það var frábært í garðinum og systkin okkar skemmtu sér vel í Hulk rússíbananum og Spiderman sýndarveruleikanum og síðan enduðu þau eftir að hafa fengið myndir af sér með allskonar fígurum í bátsferð þar sem þau BLOTNUÐU HELDUR BETUR. En þetta var skemmtilegt en við mælum með regnslá.
Laugardagur var kominn og nú þurfti maður að leggja aftur heim á leið allir voru þreyttir en höfðu skemmt sér frábærlega vel og öllum langaði að geta komið aftur á þennan frábæra stað og verið jafnvel lengur.
Heimferðin gekk vel og þökkum við öllum þeim Vildarklúbbsfélögum sem hafa gefið punktana sína og fólkinu sem hefur skilið smápeningana sína eftir í vélunum hjá Icelandair. Landsbankanum þökkum við fyrir að halda utan um þetta og koma smápeningunum í verð OG EKKI SÍST AF ÖLLUM FLUGLEIÐUM FYRIR FRÁBÆRT FRAMTAK OG STARFSFÓLKINU SEM STENDUR AÐ ÞESSU. ENGINN ORÐ GETA TJÁÐ HVERSU GLÖÐ OG ÞAKKLÁT FJÖLSKYLDAN ER EN ÞETTA ER ÓMETANLEGT ÞEGAR FÓLK Á LANGVEIKT OG FATLAÐ BARN. ÉG RÁÐLEGG ÖLLUM SEM ERU Í SÖMU SPORUM OG VIÐ Á SÆKJA UM HJÁ VILDARBÖRNUM (www.icelandair.is/vildarborn).
MÉR FINNST AÐ ÞAÐ EIGI AÐ GEFA ORÐU FYRIR SVONA. FLUGFERÐIN FYRIR FJÖLSKYLDUNA VAR GREIDD, BÍLLINN, HÚSIÐ Í ORLANDO, MIÐARNIR Í DISNEY OG VIÐ FENGUM PENING FYRIR UPPHALDI ÚT FERÐINA. ÞETTA ER ÓTRÚLEG GJÖF VIÐ HEFÐUM ALDREI HAFT EFNI Á ÞESSU OG AÐ FÁ AÐ SJÁ BÖRNIN SÍN BROSA OG HLÆJA SVONA GEFUR MANNI AUKNA ORKU UM AÐ HALDA ÁFRAM OG SKILDI GÓÐAR MINNINGAR EFTIR EKKI SÍST FYRIR HEKLU LITLU HETJUNA AÐ FLUGFERÐ ÞÝÐIR EKKI ALLTAF SPÍTALI.








