Addi í orlofi
31.7.2008
Fyrst og fremst viljum við þakka vildarbörnum kærlega fyrir að bjóða okkur upp á svona glæsilega ferð.
Addi lenti í hjarta og öndunarstoppi í nóv 2004 11 ára gamall, stoppið varði í 25-30 mínútur og þegar hann kom til baka höfðu átt sér stað miklar heilaskemmdir. Hann er búinn að vera í mikilli þjálfun og gangast undir margar erfiðar aðgerðir. Hann var valinn sem vildarbarn haustið 2005 en var ekki í stakk búinn til að fara fyrr en nú í vor 2007 þá var líka tekið á því. Þar sem fjölskyldan treysti sér ekki til að fara ein var kallað á liðsauka og auðvitað var Dóra ofurfrænka tilbúin að splæsa í ameríkuferð með frænda sínum, enda búin að standa við hlið hans allan tíman.
Þeir sem lögðu upp í þessa langferð til Orlando í Florida voru:
Hanna Magnúsdóttir, mamma
Stefán Rögnvaldsson, pabbi
Ólöf María, systir
Arnar Þór, Addi sjálfur
Halldóra Magnúsdóttir, Dóra frænka
Pálmi Aðalbjörnsson, maður Dóru
Ellý, dóttir þeirra.
Flugið gekk vonum framar, Addi er 180 cm langur og algerlega háður öðrum með allar þarfir. Við vorum dugleg að breyta um stöðu, vorum búin að útbúa stuðningsbak sem virkaði mjög vel.
Um borð voru 30 golfarar saman og þegar þeir vissu að við vorum í vildarferð færðu þeir okkur samskot sem dugði okkur vel upp í dag í skemmtigarði og þökkum við kærlega fyrir það.
Þegar út var komið beið dásemdin hún Heiða eftir okkur og þessi fíni bílaleigubíll, pínu lítill og sumir fengu áfall, við kæmum aldrei stóra hjólastólnum hans Adda inn í þetta kríli en annað kom á daginn, rúmgóður og þægilegur í umgengni (þetta var svona svipað og með litla húsið í stuðmannamyndini). Okkur leyst svo vel á bílinn að það er stemmt að því að kaupa einn slíkan.
Never lost tækið var ómissandi sem og litlu talstöðvarnar sem voru keyptar í Target. við vorum á tveimur bílum og það var mjög gott að nota talstöðvarnar
á milli bíla, í skemmtigörðunum og sérstaklega í búðunum.
Húsið sem við vorum í var stórt og glæsilegt með frábærum garði og sundlaug, sem var að vísu ekki mikið notuð við vorum alltaf á ferðinni.
Það var aðeins kíkt í búðir, Floridamall og outlet. Gott að máta til dæmis í Nike þar var bekkur í mátunarklefanum sem Addi lá á og hvíldi sig meðan allir mátuðu og hann fékk góða hvíld.
Við notuðum tækifærið og heimsóttum endurhæfingarstöð og kynntum okkur thera suit meðferð hjá þeim og komumst að því að það henntaði ekki fyrir Adda. Það
var líka hjálpartækja sýning sem við fórum á bara til þess að komast að því að við erum með allt það flottasta í þeim málum heima á Íslandi.
Við fórum í 3 garða. Í universal studios eyddum við 2 dögum og veitti ekki af, við fórum í fjórvíddarbíó, sem var gífurleg sjónörfun,það var verið að sýna Shrek, Flugum á reyðhjólum um geiminn með ET upplifðum tilbúna jarðskjálfta og fellibyl. Í Universal adventure fórum við í siglingu á risaeðluá sem endaði með 28 m háu falli sem kom okkur svolítið á óv
art, lestarferð um heimkynni köttsins með höttinn, svo fóru hinir huguðu í risa stóru rússibanana. Í Blizzard beach sem er vatnsleikjagarður var fullt að gera, fórum í nokkrar brautir og létum okkur líða eftir á sem lá stóran hring í garðinum, fórum í öldulaug og láum í sólbaði. Í Busch garden sem er í Tampa, það er í u.þ.b klukkutíma keyrslu frá Orlando, fórum við í siglingu í river rafting bolla þar sem Addi lenti undir foss og rennblotnaði. Svo skoðuðum við fullt af dýrum. Mjög flottur og skemmtilegur garður. Dóra frænka labbaði undir pálmatré í Busch garden og þá kúkaði fugl í hausinn á henni öllum til mikillar skemtunnar.
Addi gerði markt krefjandi og skemmtilegt.
Það má segja að Addi hafi verið í sjokkmeðferð (eins og hjá Stellu í orlofi) og hún virkaði, honum fór mikið fram í þessari ferð þar sem var mikið áreiti og markt nýtt að upplifa.

Það er enndalaust hægt að rifja upp skemmtileg atvik og ræða um þessa ferð og eigum við eftir að njóta hennar um ókomna frammtíð.
Þúsund þakkir fyrir okkur.
Addi og fjölskylda
Til baka,
Senda grein,
Prenta greinina