Ferðasögur

Benedikt Vagn skoðaði Universal's Islands of Adventure

Benedikt Vagn skoðaði Universal's Islands of Adventure

8.8.2008

Það var þreytt en ánægð fjölskylda sem lenti á Keflavíkurflugvelli snemma morguns þann 7 október síðastliðinn. Atburðir í lífi fjölskyldunnar síðastliðna tíu daga voru ævintýralega skemmtilegir.

Þetta byrjaði allt með því að sonur okkar Benedikt Vagn 13 ára fékk úthlutun úr sjóði Vildarbarna sumardaginn fyrsta 2007. Það var yndisleg tilfinning að sjá drenginn sinn ljóma af gleði, fullur eftirvæntingar er hann tók við skjalinu úr höndum Sigurðar Helgasonar formanni stjórnar Vildarbarnasjóðsins. Í þrettán ár hefur sonur okkar glímt við sjúkdóm og þurft að sætta sig við afleiðingar vegna hans og meðferð sem hefur oft á tíðum reynst honum erfið. því var styrkur eins og þessi ferð kærkomin upplyfting bæði fyrir sál og líkama hans og ekki síst allrar fjölskyldunnar. Við erum sex í fjölskyldunni. Auk Benedikts og okkar hjónanna eru tveir eldri synir og ein tengdadóttirBenedikt-fuglar.

Það tók Benedikt ekki langan tíma að velja sinn draumastað sem var Orlando í Florida. Eftir góðan undirbúning hjá lækni hans var Benedikt tilbúinn í fjörið. Við lögðum upp í ferðina þann 25. september. Þessi tímasetning reyndist vera mjög góð því hitinn var orðinn þolanlegur (30-33 stig) og svo var aðal ferðamannatíminn búinn sem þíddi litlar sem engar biðraðir í görðunum og veitingarhúsunum. Flugið út gekk vel fyrir utan blóðnasir hjá drengnum sem komu eflaust til vegna þrýstings í fluginu en það fór nú allt saman vel.

 

Eftir góðar upplýsingar frá flugleiða Dóru gekk vel að sækja lyklana að húsinu sem voru í lyklahólfi með talnalás í um klukkustundar fjarlægð frá flugvellinum og finna síðan húsið sem tók um tíu mínútna akstur. Okkur leið pínulítið eins og við værum komin í ratleik eins og Amasing race þáttinn og varð úr hin mesta skemmtun. Það hefði hins vegar ekki gengið vel án Never Lost tækisins sem var í bílnum. Húsið fundum við í fallegu og rólegu hverfi sem var vaktað.

 

Við urðum orðlausBenedikt-hus þegar við gengum inn í húsið. Það var hreint út sagt glæsilegt!

Þetta var stórt hús með öllum þægindum, þrjú góð svefnherbergi og stór svíta með útgengi að sundlaug. Tvö baðherbergi, tvær stofur og stórt eldhús einnig með útgang að sundlauginni og glæsileg borðstofa. Verönd með sólbekkjum og stólum og borði og stórri sundlaug og byrjuðum við alltaf daginn með góðum sundspretti og keppni í sundbolta. Gaman að segja frá því að á hverjum morgni heimsóttu okkur þrír flamigo fuglar sem gáfu frá sér skrítin hljóð. Við erum viss um að lætin í okkur hafi vakið forvitni þeirra á að athuga hvað væri eiginlega í gangi. Við vorum allavega þau einu sem þeir heimsóttu.

 Benedikt_og_pabbi

Orlando er í raun byggð upp sem ferðamannaborg. Í borginni eru engin kennileiti eins og í öðrum borgum. Þangað sækja milljónir manna á ári hverju til þess eins að upplifa ævintýralegt frí með fjölskyldunni. Það eru skemmtigarðar af öllum      stærðum og gerðum, bókstaflega allstaðar og eru margir þeirra búnir ótrúlegri tækni. Við þurftum að velja vel hvaða garða við vildum  skoða. Það getur verið hörkupúl að fara í þessa garða ef maður á að geta skoðað allt sem er í boði í þeim. Við tókum heilan dag í hverjum garði til að ná því að gera flest allt.

Við fórum í Seaworld, Universal Studio, Islands of Adventure, og Kennedy Space Center. Við fórum einnig í leikhús að sjá Cirque Du Soleil sem var stórkostleg sýning og við mælum eindregið með henni fyrir allan aldur. Allir garðarnir voru frábærir Benedikt-_billþó standa Universal Studio og Island of Adventure garðarnir uppúr. Þeir voru flottir og tæknin ótrúleg, allt það nýjasta í sýndarveruleika og vart hægt að lýsa þeirri upplifun með orðum. Það er ekki orðum ofaukið þegar ég segi að við sem höfðum slitið barnsskónum urðum aftur börn og skríktum og brostum allan hringinn þegar við fórum í tækin og stúdióin.Benedikt-space_mynd

Kennedy Space Center er meira svona fræðslusetur heldur en skemmtigarður en mikil upplifun að fara þangað og sjá geimskutlurnar. Við fórum líka í nokkra herma, td. var einn þannig að maður upplifir geimskot eins og geimfari. Einnig voru nokkur þrívíddarbíó um geimskot og fl.

 

Matsölustaðir eru á hverju götuhorni. Við fórum á nokkra og fannst okkur einn ótrúlega skemmtilegur. Það var Japanskur staður sem heitir Kobe steak house. Þar kom kokkur og eldaði svakalega góðan mat á borðinu okkar ásamt því að leika listir með hnífana, við vorum svo dolfallin að við gleymdum að taka mynd af honum.

 Benedikt-edla

Það fer engin til Bandaríkjanna án þess að kíkja í búðir! Við röltum um Downtown Disney. Þar er mega Virgin búð og vorum við dágóðan tíma þar inni að skoða. TölvuleikirBenedikt-spider-man og Ipodar áttu hug Benedikts allan og gerði hann fín kaup í þeim málum. Við fórum einnig í Guitar Center, þar eru gítarar á mjög góðu verði. Einnig fórum við í Premium outlet og Florida Mall og versluðum skó og íþróttafatnað.

Benedikt stóð sig eins og hetja í görðunum og gat tekið þátt í flest öllu þar. Hann var þó mjög þreyttur eftir daginn svo að við tókum pásur daga á milli garða og slökuðum á eða kíktum aðeins í búðir. Vonandi getum við heimsótt Florida aftur í framtíðinni og haldið áfram þar sem frá var horfið því af nógu er að taka.

 

Það sem svona ferð skilur eftir sig er að þarna áttum við fjölskyldan frábærar og ómetanlegar stundir saman í allt öðru umhverfi en því sem við hrærumst í alla daga. Benedikt Vagn er í skýjunum yfir þessari ferð og erum við mjög þakklát Vildarbörnum fyrir að gera okkur það mögulegt að létta honum lundina frá amstri dagsins, það var svo sannarlega kærkomið.

Benedikt-Universal

Við erum ekki í vafa um að þessi ferð sé besta utanlandsferð sem fjölskyldan hefur farið í saman.

Takk fyrir okkur!

 

Benedikt Vagn og fjölskylda.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.