Ferðasögur
Pálmi hitti uppáhalds persónur sínar, Bangsimon og Tígra
Allir voru hressir og kátir þegar lagt var af stað í draumaferð fjölskyldunnar til Flórída. Pálmi var alsæll í flugvélinni með vasadiskóið sitt og nýja latabæjardiskinn sem hann keypti í fríhöfninni.
En ekki vildi hann sofna í flugvélinni,
því hann ætlaði að sofa í Holidayhomes húsinu. Nokkurn tíma tók nú að finna húsið okkar, það var svo nýtt að það var ekki komið inn í “Never lost” kerfið. Við gleymdum auðvitað fljótt þreytu og erfiðu ferðalagi eftir að við sáum þetta fína hús og sundlaugina! Fyrsta daginn fórum við á rúntinn og reyna að rata og finna búð og auðvitað fundum við Wal-Mart þar sem gott var að versla og allt færst í. Við gerðum okkur margt til skemmtunar í Ameríku. Við byrjuðum á að fara í Krókódílagarð, þar sem allt var fullt að krókódílum af ö
llum s
tærðum og gerðum. Það var ágætt til að venja Pálma við mannfjöldan í stórum görðum. Mesta upplifunin var svo að fara í Disney garðinn,Magic Kingdom. Þar var margt um manninn og mikið hægt að skoða. Pálmi gerðist meira svo djarfur að fara í rússibana í svartholi en Pálmi og mamma fóru nú ekki í fleiri svoleiðis tæki. Mest fannst Pálma gaman að sjá uppáhalds persónurnar sínar
Bangsimon og Tígra og vera í rólegum tækjum þar sem allar sögupersónurnar lifnuðu við og sögðu sína sögu. Jóhönnu og Sólrúnu fannst nú mest gaman í
búðunum og fundu nokkrar Outlett búðir þar sem var hægt að gera góð kaup, en Pálmi og Gylfi nenntu ekki í svona ótrúlegaleiðinlega búðir. Seworld var líka ótrúlega skemmtileg. Þar sáum við Samu, háyrningin, alla höfrungana og sæljónin lekia listir sínar. Okkur öllum þótti svo líka gaman að fara á hina ýmsu Amerísku skyndibitastaði og fá risastóra skammta og ekki þótti Pálma slæmt bætt væri Coki í glasið þegar það var búið!! Best þótti okkur við ferðina, fyrir utan sundlaugina, að fá forgangspassa bæði í Disney land og Seworld sem var ekkert mál að fá, einhverfir eiga oft ansi erfitt með að bíða.
Við þökkum kærlega fyrir frábæra og ógleymanlega ferð.





