Ferðasögur

Katrín Helena fór í draumaferðina sína.

19.11.2008

Loksins var 20. maí 2008 runninn upp. Dagurinn sem Katrín Helena og fjölskylda höfðu beðið eftir með mikilli spennu og eftirvæntingu. Nú átti að leggja af stað í draumaferð Katrínar Helenu til Flórída. Gleði og ánægja var ríkjandi þegar fjölskyldan hélt á vit ævintýranna með fjórar óskir Katrínar Helenu í farteskinu. Katrín Helena naut hverrar mínútu flugsins, hlustaði á ipod, litaði og skrifaði. Og ekki spillti það gleði hennar að fyrsta óskin var næstum uppfyllt, ósk sem enginn átti von á að myndi rætast. Katrín Helena átti sér þá ósk að hitta Danny í Grease í Flórída og borða með honum pizzu. Flugþjónn í þessu flugi Leifs Eiríkssonar var Jónsi, hinn íslenski Danny í Grease. Með einstakri lipurð og ljúfmennsku spjallaði hann við Katrínu Helenu um stund og gaf henni eiginhandaráritun. Þar með rættist fyrsta ósk Katrínar.

 

Katrin_Helena_1

   Þegar komið var til Orlando gekk vel að finna hótel Bahama Bay Resort, þökk sé Neverlost kerfinu. Hótelið var frábært, íbúðin, garðurinn og sundlaugin þar sem Katrín Helena hefði getað dvalið alla dagana frá morgni til kvölds.

   Við gerðum okkur margt til skemmtunar í Florida. Við fórum í Disney garðinn Magic Kingdom og þar var svo sannarlega hægt að hafa nóg fyrir stafni. Í Magic Kingdom rættust tvær óskir Katrínar Helenu. Hún hitti uppáhaldspersónur sínar, Mikka og Mínu. Fékk knús frá Mikka og koss frá Mínu. Bangsímon og Tígri og fleiri skemmtilegar persónur urðu líka á vegi okkar. Þriðja ósk Katrínar Helenu rættist svo þegar hún brá sér í hringekju. Hún skemmti sér konunglega í vatnsrússíbana og kappakstursbíl, þar sem hún var sjálf við stýrið. Mesta upplifunin var þó að fara í skipið hans Péturs Pans þar sem hún varð hluti af ævintýrinu. Katrin_Helena_2

   Að fara í Seaworld og sjá háhyrninginn Shamu, höfrungana, sæljónin, dýfinga- og fimleikafólkið leika listir sínar gleymist seint.

   Wet’n Wild vatnsleikjagarðurinn var frábær skemmtun fyrir fjölskylduna. Allar brautir og laugir voru prófaðar. Katrín Helena hélt sig þó að mestu við minni brautirnar því að hitinn á stéttunum brenndi hana á iljunum og hindraði hana í að feta sig upp stigana í stóru brautirnar. Það dró samt ekki úr ánægju hennar og hún skemmti sér konunglega. Að loknum skemmtilegum degi í Wet’n Wild gengum við um International drive. Á þeirri göngu rættist fjórða ósk Katrínar Helenu, ósk hennar um að sjá krókódíl.

   Á milli heimsókna í garðana slökuðum við á í sólinni og svömluðum í sundlauginni, kíktum í búðir og nutum lífsins í sól og sumaryl.Katrin_Helena_3

   Ekki er hægt að ljúka ferðasögu fjölskyldunnar án þess að minnast á það þegar við fórum á Rainforest café, veitingastað sem staðsettur er í Down town Disney. Að heimsækja þennan veitingastað er ævintýri líkast. Gengið er inn í regnskóg með stjörnubjörtum himni ásamt tilheyrandi dýrahljóðum. Fílar rymja, apar skrækja og sveifla sér í trjánum, fuglar kvaka, fiðrildi blaka vængjum og marglitir fiskar synda í búrum. Blossar af eldingum birtast af og til og þrumugnýr og regndropar fyKatrin_Helena_4lgja á eftir og fullkomna stemninguna.

 

  

Öll góð ævintýri taka enda og það átti einnig við um ævintýrið okkar. 10 daga draumaferð fjölskyldunnar var lokið og komið að heimferð sem gekk vel.

 

  

Þökkum kærlega fyrir frábæra og ógleymanlega ferð sem á eftir að lifa lengi í minningunni.

                                                            Kveðja

                                                                   Katrín Helena Magnúsdóttir og fjölskylda

                                                                   Vestmannaeyjum.

 

 

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.