Fréttir
Gefðu með þér: Þeir sem snæða gæðalax styrkja Vildarbörn
Ópal Sjávarfang, í samstarfi við verslanir sem selja reyktan laxinn þeirra, Icelandair og fleiri fyrirtæki, stendur um þessar mundir fyrir verkefninu „Gefðu með þér“ sem er tileinkað Vildarbörnum Icelandair - ferðasjóði langveikra barna. Sjóðurinn aðstoðar langveik börn og fjölskyldur þeirra við að stíga um stund út úr skugga óvissu og fjárhagsörðugleika, sem gjarnan fylgir erfiðum veikindum, og brjóta upp hversdaginn, ferðast saman og búa til góðar minningar.
„Gefðu með þér“ felst í því að verslanirnar sem taka þátt bjóða til sölu hangireyktan lax frá Ópal Sjávarfangi. Um er að ræða 200 gramma spjöld af handsneiddum og þurrsöltuðum laxasneiðum úr fersku hráefni. Hangireykti laxinn er flaggskip fyrirtækisins og í hæsta gæðaflokki. Af hverju laxaspjaldi, sem kostar 897 kr. út úr búð, renna 300 krónur óskertar til Vildarbarna. Þetta hefur tekist með því að allir þátttakendur hafa gefið vinnu sína, efniskostnað og annað sem verkefninu tilheyrir, ásamt því sem álagning vörunnar rennur beint í sjóðinn.
Fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu „Gefðu með þér“ eru: Auglýsingastofan Ennemm, Hagkaup, Kaskó, Krambúðin, Krónan, Melabúðin, Nettó, Nóatún, Ópal Sjávarfang, Rými, Samkaup, Svansprent, 10-11 og Vörumerking.

Ópal Sjávarfang þakkar þessum fyrirtækjum frábærar undirtektir og alla þá óeigingjörnu vinnu sem hefur verið lögð fram svo þessi stuðningur við Vildarbörn geti orðið að veruleika.





