Fréttir

Captain Gorgeous - Vildarbörn

10.5.2011

Fyrir árshátið Icelandair tóku starfsmenn þátt í að gera glæsileg myndbönd og óhætt er þó að segja að eitt myndbandið hafi borið höfuð yfir herðar í keppninni. Það var myndband þeirra Snorra Bjarnvins Jónssonar, Péturs Ludvik Lentz, Heimis Helgasonar og Björns Inga Hafliðasonar, það sem almennt er kallað crew myndbandið.  

Myndband þeirra fékk verðlaun fyrir mesta áhorfið (80.194) og einnig atkvæði dómnefndarinnar fyrir besta myndbandiðCaptain_Gorgeous_-_Vildarborn_2011. Myndbandið öðlaðist heimsfrægð og rataði inn á fréttavefi víðsvegar um heiminnn. 

Nú hafa sigurvegararnir ákveðið að láta verðlaunaféð renna til Vildarbarna, en það eru samtals 80.000.- krónur.

Engin efast um það að Vildarbörn eiga eftir að njóta vel framtaks flugmannanna og er þeim færðar kærar þakkir.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.