Fréttir

20 börn í draumaferð

22.10.2011

Tuttugu börnum var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, fyrsta vetrardag.

Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Í fréttatilkynningu frá Icelandair kemur fram að alls hafa rúmlega 300 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 17. úthlutun sjóðsins og 9. starfsár hans.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með eftirtöldum hætti: Með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa margar fjölskyldnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggist á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en Sigurður Helgason er formaður stjórnar hans.

 

 

17._uthlutun_rett

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.