Fréttir

Hjartaheill færir Vildarbörnum erlenda smámynt

25.11.2011

Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga afhentu nýlega Vildarbörnum Icelandair átta fullar fötur af erlendri smámynt úr söfnunarbaukum sínum.

Hjartaheill, sem berst fyrir hagsmunamálum hjartasjúklinga með margvíslegri starfsemi, telur erlendu smámyntinni vel fyrir komið hjá Vildarbörnum Icelandair. Sjóðurinn Vildarbörn er einmitt fjármagnaður með söfnun myntar um borð í vélum Icelandair og auk þess m.a. með beinu fjárframlagi Icelandair og frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair. Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa rúmlega 300 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans.

 

 

mynt_nov_2011

Aðilar á mynd eru frá vinstri frá Hjartaheill, Guðmundur Bjarnason, formaður, Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna Icelandair, Guðrún Franzdóttir, Ásgeir Þór Árnason, fram kvæmdastjóri, Kristján Smith, Sveinn Guðmundsson, varaformaður og Rúrik Kristjánsson.

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.