Fréttir

Vildarbörn

24.4.2003

VILDARBÖRN ICELANDAIR
-sameiginlegt átak Icelandair og viðskiptavina til stuðnings veikum börnum og fjölskyldum þeirra

Í dag, sumardaginn fyrsta, er stofnfundur VILDARBARNA, sjóðs sem hefur það markmið að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður hér á Íslandi og í nágrannalöndum tækifæri til ferðalaga. Vonast er til þess að sjóðurinn standi undir kostnaði við draumaferð að minnsta kosti 20 barna og fjölskylda þeirra árlega. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

"Það er draumur margra veikra barna að geta ferðast með fjölskyldu sinni og upplifað ævintýri í útlöndum, hvort sem það er í Tívolí í Kaupmannahöfn eða Disney World í Flórída, eða annarsstaðar. Þessi nýi sjóður, Vildarbörn, gefur okkur og viðskiptavinum okkar tækifæri til að gleðja mörg íslensk börn og börn erlendis sem dreymir um að koma til Íslands. Það er í okkar huga ekki síst mikilvægt að börnin geti tekið sína nánustu með sér og að ferðakostnaður sé greiddur t.d. gisting og uppihald, auk flugfarsins", segir Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair.

Sjóðurinn verður fjármagnaður með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með stofnframlagi Icelandair að fjárhæð 3 milljónir króna. Í öðru lagi með framlögum frá félögum í Vildarklúbbi Icelandair, sem geta gefið ákveðinn fjölda ferðapunkta sinna árlega. Nú eru um 200 þúsund félagar í Vildarklúbnum og um helmingur þeirra erlendis. Vildarklúbbsfélagar munu geta gefið punkta sína með einföldum hætti á heimasíðum Icelandair. Í þriðja lagi með afgangsmynt sem farþegum býðst að setja í umslög sem verða í sætisvösum véla Icelandair og munu flugfreyjur/þjónar félagsins taka á móti umslögunum.

Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Icelandair, er formaður sjóðsins og varaformaður er Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans. Aðrir í stjórn Vildarbarna eru Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir Barnaspítalans, Lilja Sigurðardóttir, flugfreyja, Auðbjörg Ingvarsdóttir, félagsfræðingur, Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri, Peggy Helgason, iðjuþjálfi, Séra Ingileif Malmberg, sjúkrahúsprestur, Kári Kárason, framkvæmdastjóri Flugleiðahótelanna og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri.

Sjóðurinn starfar á grundvelli laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Landsbanki Íslands annast fjárhald sjóðsins. Nánari reglur um úthlutanir úr sjóðnum, umsóknarskilmála og fleira verða kynntar með auglýsingum á næstu dögum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er 21. apríl 2012 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2012

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.