Fréttir
Fyrsta úthlutun úr Vildarbörnum
Síðastliðinn laugardag, Vetrardaginn fyrsta, var fyrsta formlega úthlutunin úr Vildarbörnum. Vildarbörnin voru stofnuð á Sumardaginn fyrsta og er markmið Vildarbarna að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumferðina sína, og þannig brjóta upp erfiðan hversdagsleika.
20 börn og fjölskyldur þeirra sóttu um styrk úr sjóðnum og hlutu 7 þeirra styrk í þetta skiptið. Sjóðsstjórn var því vandi á höndum að velja þau 7 börn sem hlutu styrk í þetta skiptið. Í styrknum felst ferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er innifalið í ferðinni flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyri að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Flest börnin hafa sýnt áhuga á að fara til Flórída í Disneyland, en einnig er áhugi fyrir að fara á Liverpool leik.
Afhendingin á laugardaginn fór fram í Víkingasal Loftleiða og fengu börnin og systkini þeirra auk viðurkenningarskjals peysur merktar Icelandair og flugvélamódel. Mikil gleði og ánægja lísti viðburðnum á laugardaginn og voru allir þeir sem hlutu styrkinn að sjálfsögðu mjög ánægðir og börnin farin að hlakka mikið til ferðarinnar.
Fjármögnun sjóðsins er þrenns konar. Í fyrsta lagi lagði Flugleiðir fram kr. 3.000.000 í stofnframlag og mun einnig styrkja sjóðinn með kr. 1.000.000 árlega. Í öðru lagi geta félag í Vildarklúbbnum gefið vildarpunkta, og er þeir nýttir í flugmiðana. Í þriðja lagi er söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair. Þeir peningar eru nýttir í útlagðan kostnað, annan en farmiða.
Söfnunin um borð hefur gengið vonum fram og eiga áhafnir Icelandair sérstakar þakkir skilið fyrir þeirra framlag í þeirri vinnu. Landsbankinn er fjárvörsluaðili sjóðsins, og sér einnig um talningu myntarinnar.
Ákveðið hefur verið að úthluta styrkjum úr sjóðnum tvisvar á ári: Sumardaginn fyrst og Vetrardaginn fyrsta. Næsta úthlutun verði því næsta vor.





