Fréttir

Átta Vildarbörn á leið í draumaferðina - Eight Children Received a Dream Journey

Átta Vildarbörn á leið í draumaferðina - Eight Children Received a Dream Journey

23.10.2004

Í dag, fyrsta vetrardag, er í þriðja sinn úthlutað styrkjum úr sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair og viðskiptavina félagsins. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Að þessu sinni sóttu um 50 börn og fjölskyldur þeirra um styrk úr sjóðnum og hlutu átta þeirra styrk. Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa mörg barnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með þrennskonar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair. Í öðru lagi með frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er sjóðurinn fjármagnaður með söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair.

Þá hefur sjóðnum nú borist rausnarleg gjöf frá hjónunum Páli Samúelsson og Elínu Jóhannesdóttur og Boga Pálssyni og Sólveigu Magnúsdóttur, sem er hótelgisting fyrir Vildarbarnafjölskyldu í fjórar vikur árlega á fyrsta flokks íbúðahóteli í Orlando í Florida.

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og formaður stjórnar hans er Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Icelandair. Landsbankinn er fjárgæsluaðili sjóðsins.

Árangur myntsöfnunarinnar um borð í flugvélum Icelandair hefur farið fram úr björtustu vonum og fleiri börn eiga þess því kost í ár að fara í draumaferð sína en aðstandendur gerðu ráð fyrir. Við afhendinguna styrkjanna í dag fengu börnin og systkini þeirra auk viðurkenningarskjals peysur merktar Icelandair.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.