Fréttir

Starfsmenn Flugleiðasamsteypunnar og Landsbankans flokka mynt fyrir Vildarbörn

28.5.2004

Um 130 starfsmenn Landsbankans og Flugleiðasamsteypunnar komu saman á Nordica hótelinu í gær til að flokka mynt sem farþegar Icelandair hafa gefið til Vildarbarna, ferðasjóðs barna sem búa við erfiðar aðstæður. Sjóðurinn er rúmlega ársgamall og hefur þegar gert um 20 börnum og fjölskyldum þeirra, alls rúmlega 100 manns kleift að fara í eina draumaferð, sér að kostnaðarlausu.

Gríðarlegt magn myntar hefur safnast á undanförnum mánuðum frá farþegum sem stinga afgangsmynt sinni í lítil umslög sem eru um borð í flugvélum Icelandair. Reyndar er ekki hægt að tala um afgangsmynt, því í sumum umslögunum voru umtalsverðar upphæðir, þúsundir króna, í seðlum.

Flokkunin á Nordica hótelinu stóð frá kl. 16.00 í gær og lauk um klukkan 20.00. Rífandi gangur var í starfinu allan tímann og stórir og þungir dallarnir, fullir af óflokkuðu klinki, tæmdust einn af öðrum og aðrir fylltust jafn óðum með mynt hverrar þjóðar. Búist er við að heildarfjárhæðin muni nema um 4-5 milljónum króna.

www.vildarborn.is

Starfsmenn Flugleiðasamsteypunnar og Landsbankans flokka mynt fyrir Vildarbörn

Sigurður Helgason forstjóri Icelandair, Peggy Helgason iðjuþjálfi og í stjórn Vildarbarna, Halldór Jón Kristjánsson bankastjóri Landsbankans og Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Icelandair og stjórnarformaður Vildarbarna

Starfsmenn Flugleiðasamsteypunnar og Landsbankans flokka mynt fyrir Vildarbörn

130 starfsmenn Landsbankans og Icelandair komu saman og lögðu Vildarbörnum lið

Starfsmenn Flugleiðasamsteypunnar og Landsbankans flokka mynt fyrir Vildarbörn

Nýútskrifaðar flugfreyjur Icelandair komu beint í flokkunina frá útskriftarathöfninni

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.