Fréttir

Tólf Vildarbörn á leið í draumaferðina

Tólf Vildarbörn á leið í draumaferðina

22.4.2004

Í dag, sumardaginn fyrsta, er í annað sinn úthlutað styrkjum úr sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair og viðskiptavina félagsins. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Að þessu sinni sóttu 80 börn og fjölskyldur þeirra um styrk úr sjóðnum og hlutu 12 þeirra styrk. Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutun, sem var síðastliðið haust, völdu flest barnanna að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.
Sjóðurinn Vildarbörn fagnar í dag eins árs afmæli sínu. Hann er fjármagnaður með þrennskonar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair. Í öðru lagi með frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er sjóðurinn fjármagnaður með söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og formaður stjórnar hans er Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Icelandair. Landsbankinn er fjárgæsluaðili sjóðsins.

Árangur myntsöfnunarinnar um borð í flugvélum Icelandair hefur farið fram úr björtustu vonum og fleiri börn eiga þess því kost í ár að fara í draumaferð sína en aðstandendur gerðu ráð fyrir. Við afhendinguna styrkjanna í dag fengu börnin og systkini þeirra auk viðurkenningarskjals peysur merktar Icelandair og flugvélamódel.
Á heimasíðu fyrir Vildarbörnin, www.vildarborn.is , er að finna nánari upplýsingar um sjóðinn.


Á myndinni að neðan er hópurinn sem fer í draumaferð sína, börnin og fjölskyldur þeirra, ásamt sjórnarfólki Vildarbarna og starfsfólki Icelandair.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.