Fréttir
Afhentu Vildarbörnum 5 milljónir í mynt
Í dag afhentu Björgólfur Guðmundsson, bankastjóri Landsbankans og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Vildarbörnum, sjóðs fyrir langveik börn, afrakstur söfnunar á afgangsmynt sem farið hefur fram um borð í flugvélum Icelandair frá því í maí á sl. ári. Alls er þetta um það bil hálft tonn af mynt, eða rúmlega 5 milljónir króna.
Á síðasta ári söfnuðust með þessum hætti rúmlega 5 milljónir króna, þar af um 3 milljónir í erlendri mynt. Árangur söfnunarinnar hefur farið fram úr björtustu vonum og hefur magn myntar úr söfnuninni orðið langtum meira en aðstandendur hennar höfðu gert ráð fyrir.
Myntinni er safnað í sérstök umslög í sætisvösum véla Icelandair og taka flugfreyjur/þjónar félagsins á móti umslögunum. Samtals bárust tæplega 15 þúsund umslög á tímabilinu. Landsbankinn hefur síðan tekið á móti myntinni sem fjárgæsluaðili sjóðsins.
Erlenda myntin er að langstærstum hluta í evrum, dollurum og sterlingspundum, en einnig hefur borið á mynt frá fjarlægari löndum t.d. Kína, Ástralíu, Indlandi og Suður- Afríku. Þá er framlagið afar mismunandi hátt eða allt frá einni krónu upp í 5 þúsund krónur.
Sjóður Vildarbarna hefur það markmið að gefa með árlegri úthlutun langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður hér á Íslandi og í nágrannalöndum tækifæri til ferðalaga. Fyrr í vetur hlutu 7 börn og fjölskyldur þeirra úthlutun úr sjóðnum, og eru sum þeirra nú þegar búin að fara í draumaferðina. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
Sjóðurinn er fjármagnaður með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með stofnframlagi Icelandair að fjárhæð 3 milljónir króna. Í öðru lagi með framlögum frá félögum í Vildarklúbbi Icelandair, sem geta gefið ákveðinn fjölda ferðapunkta sinna árlega og þriðja lagi með afgangsmynt.
Landsbankinn hefur áður staðið að söfnun á afgangsmynt til styrktar langveikum börnum og má nefna að 8 milljónir króna söfnuðust árið 1999 í útibúum bankans í desembermánuði. Þá er bankinn jafnframt fjárgæsluaðili Sjónarhóls, en söfnunin er til styrktar átaki sem miðar að því að starfrækja sjálfseignarstofnunina Sjónarhól, þjónustu- og ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir.
Á myndinni eru frá vinstri:
Björgólfur Guðmundsson bankastjóri Landsbankans, Daníel Aron Sigurjónsson sem er einn af 7 sem fengu úthlutað úr Vildarbarnasjóðnum á síðasta ári, Ragnhildur Geirsdóttir stjórnarformaður Vildarbarna, Peggy Helgason sem situr í stjórn Vildarbarna, og Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða.





