Fréttir

Eitt þúsund manns hafa farið í draumaferðina með Vildarbörnum Icelandair - Fimm fjölskyldur til Orlando í dag

16.3.2009

mbl_16.03.09_fimm_fjolsk._til_Orlando Síðdegis í dag fara fimm langveik börn, eða börn sem búa við erfiðar og sérstakar aðstæður, með fjölskyldum sínum í draumaferð til Orlando Í Florida á vegum Vildarbarna Icelandair. Á þeim sex árum sem liðin eru frá stofnun sjóðsins hafa 224 börn og yfir eitt þúsund fjölskyldumeðlimir ferðast á vegum sjóðsins, sem var stofnaður til þess að veita fólki sem á erfitt með ferðalög tækifæri til þess að komast í frí til annarra landa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. „Það er óeigingjarnt framlag farþega okkar sem gerir þetta frábæra verkefni mögulegt því með gjöfum þeirra á innlendri og erlendri mynt er lagður grunnur að sjóðnum. Sumir farþegar láta einnig vildarpunktana sína renna til Vildarbarna. Til viðbótar þessu leggur Icelandair til fjárhæð á hverju úthlutunartímabili,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningunni en hann kvaddi fjölskyldurnar fimm sem fara erlendis í dag. „Sjóðurinn hefur orðið öflugri með hverju ári sem gerir sífellt fleiri fjölskyldum fært að komast í draumaferðina. Ferð sem þessi er oft kærkomin því veikindi barna hafa gífurleg áhrif á alla fjölskylduna.“ Fjölskyldunum sem fá styrk Vildarbarna er boðið í utanlandsferð að eigin vali til áfangastaða Icelandair og er allur kostnaður greiddur: flug, gisting, bílaleigubíll, dagpeningar, auk aðgangseyris að sérstökum viðburði sem hvert Vildarbarn kýs að upplifa. Vinsælasta ferðalag Vildarbarna hefur hingað til verið vikuferð til Disney World í Flórída en þau hafa einnig valið ýmsa aðra áfangastaði.

Þessi grein var fengin úr Viðskiptablaðinu þann 16.03.09.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.