Fréttir

Nýtt merki Vildarbarna.

24.10.2009

Í dag var kynnt nýtt merki Vildarbarna eftir Þórdísi Filipusdóttur, hönnuð, og byggir á hugmyndinni "frelsi og flug" og sýnir börn á flugi í kringum hjarta.

Nytt_logo_eftir_Tordisi_Filipusdottur_2
Þegar Þórdís málaði merkið vildi hún láta það vera barnslegt og lifandi. Hún kynnti sér sjóðinn vel og vildi túlka myndrænt það sem sjóðurinn stendur fyrir.

Frelsi, flug og draumar sem rætast, eftirvænting, gleði og samkennd. Icelandair er þáttakandi í fluginu og því frelsi sem Vildarbörn láta rætast hjá langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður.

Hún vildi einnig ná til þeirra sem styrkja Vildarbörn, vekja upp samkennd og einlægan vilja að taka þátt í að láta draum barns verða að veruleika.

 

nytt_logo_-_afhending

 

 Á myndinni er Peggy Helgason, Þórdís Filipusdóttir, hönnuður, Sigurður Helgason, formaður sjóðsins og Vigdís dóttir Þórdísar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er fyrsta vetrardag 23. október 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. september 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.