Fréttir

Stjórn Vildarbarna fékk Vildarengilinn að gjöf.

24.10.2009

Í dag 24. október, fór fram 13. úthlutun úr sjóði Vildarbarna og af því tilefni fékk stjórn Vildarbarna Vildarengilinn að gjöf.

Vildarengillinn er söfnunarátak fyrir Vildarbörn og er hann seldur um borð í vélum Icelandair, einnig er hægt að kaupa hann á netinu í gegnum Saga Shop með Vildarpunktum.

Átakið hófst í byrjun október og hafa undirtektir verið ótrúlega góðar.

stjorn_tekur_vid_Vildarenglinum

Á mydinni eru Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, Peggy Helgason, Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair Group, Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðs- og sölusviðs Icelandair, Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands og verndari sjóðsins, Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður Markaðs- og viðskiptaþróunnar Icelandair, Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna Icelandair og Stefán J. Hreiðarsson, Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Umsókn

Veitt er úr sjóðnum tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Næsta úthlutun er sumardaginn fyrsta 22. apríl 2010 en tekið er við umsóknum nú þegar. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2010

Fylla út umsókn



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.