Ellefu börnum og fjölskyldum þeirra, samtals sextíu manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair í dag. Alls hafa 717 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 19 árum og úthlutunin í dag var sú 34. í röðinni.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér.
Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutunina í morgun.