Um sjóðinnFerðasögurÚthlutanir
Styrkja starfiðUmsókn
Footer logo

Hafa samband

[email protected]

50 50 300

Um sjóðinnFerðasögurÚthlutanir
Styrkja starfiðUmsókn
© 1999-2025 Icelandair ∙ Öll réttindi áskilin ∙ Icelandair ∙ Flugvöllum 1 ∙ 221 Hafnarfirði

20. apríl 2023

Vorúthlutun Vildarbarna 2023

Sautján börnum og fjölskyldum þeirra, samtals 80 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair á sumardaginn fyrsta. Alls hafa 725 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum og rúmlega 3.500 mann ferðast á vegum hans. Sjóðurinn fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli og var úthlutunin í dag sú 35. í röðinni.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferðina. Í hverjum styrk felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarin ár afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.

Við afhendinguna í morgun skemmtu Diljá með Eurovision laginu árið 2023 og Flugfreyjukór Icelandair viðstöddum með tónlistarflutningi.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: „Það er mjög ánægjulegt að taka þátt í góðum verkefnum eins og Vildarbörn Icelandair eru. Sjóðurinn sem byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason iðjuþjálfa, hefur nú starfað í tuttugu ár og veitt hundruðum fjölskyldna tækifæri til að ferðast og eiga saman gleðistundir. Við erum mjög stolt af sjóðnum og þakklát viðskiptavinum okkar fyrir þeirra framlag til þessa góða málefnis.“

Næsta